Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

deTrix25
deTrix25 Notandi frá fornöld Karlmaður
334 stig

Re: Minni og PCMCIA Netkort

í Vélbúnaður fyrir 22 árum, 11 mánuðum
Reyndar er til PCMCIA-PCI adapter þannig að þú gætir notað PCMCIA kort í borðtölvuna þína, en það yrði oftast skelfilega dýr lausn…

Re: Er þetta normal ?

í Flug fyrir 22 árum, 11 mánuðum
hehehe - góður þessi Kristbjörn! deTrix :)

Re: vandamál með nýjan hdd

í Vélbúnaður fyrir 22 árum, 11 mánuðum
Ég held að það sé best fyrir þig að fara bara niður í TL á þriðjudaginn og biðja þá um að líta á diskinn fyrir þig.

Re: vandamál með nýjan hdd

í Vélbúnaður fyrir 22 árum, 11 mánuðum
Þarna er líklega vandamálið… þú ert að gera eitthvað vitlaust þarna…

Re: vandamál með nýjan hdd

í Vélbúnaður fyrir 22 árum, 11 mánuðum
Mundirðu eftir að activate partitionið áður en þú restartaðir?

Re: Er þetta normal ?

í Flug fyrir 22 árum, 11 mánuðum
Það er engin hætta á því að þetta 112 flugvéla flugfélag ráði svo mikið sem einn flugmann þar sem þeir ætla hvorki að vera með flugmenn né flugvirkja í vinnu - enda verður þetta ekki flugfélag að forminu til. Hvað varðar atvinnuleysi hjá íslenskum flugmönnum geri ég ráð fyrir því að það sé hlutfallslega jafn mikið og hjá flugmönnum í öðrum löndum. Málið er bara það að þetta er ástand sem kemur líklega reglulega upp, þarf ekki bara að taka því með ró þar til að ástandið skánar - þá fá allir...

Re: vandamál með nýjan hdd

í Vélbúnaður fyrir 22 árum, 11 mánuðum
Afhverju léstu þá í TL ekki partitiona og formata diskinn? deTrix

Re: Er þetta normal ?

í Flug fyrir 22 árum, 12 mánuðum
Þó ég sé alveg sammála þér Extrakt, að þá er ég eiginlega meira sammála Kristbirni. Nú er ég ekki viss um að ég sé að fara með rétt mál (vil því fá leiðréttingu ef þess er þörf), en getur verið að Atlanta hafi tapað máli gegn flugmanni sem fór til Flugleiða? Þetta var eitthvað á þá leið að hann skrifaði undir víxil/skuldarviðurkenningu, sem hann átti að fá leysta til sín þegar einhver x tími var liðinn, en hann fór til Flugleiða fyrir þennan x tíma og neitaði að greiða. Dæmt var flugmanninum...

Re: Flugnám á þyrlu

í Flug fyrir 22 árum, 12 mánuðum
Hvað kostar allur pakkinn í dag, þ.e.a.s. ef maður fer alla leið og vill fá atvinnuflugmannspróf?

Re: Aviace þotuklúbbur?

í Flug fyrir 23 árum
B17: afhverju kallar þú Flugskólan Loft “afrek”? Tapaði einhver flugmaður/flugnemi peningum á Hilmari og Flugskólanum Lofti?

Re: Súperturn.... eða ekki

í Vélbúnaður fyrir 23 árum
Mér skilst að þeir í tölvulistanum séu ekki hrifnir af því að skipta út skjákortum sem eru á móðurborðunum… fer víst illa með móðurborðið að saga það… deTrix

Re: Afmæli hjá Geirfugli

í Flug fyrir 23 árum
hehehe… það er ekkert að marka þegar þú segir svona, þú ert sjálfur í félaginu! :) deTrix

Re: Aviace þotuklúbbur?

í Flug fyrir 23 árum
Og hvað með það? Socata: hættu þessu endalausa væli! Aðrir: hættið að láta Socata væla! deTrix

Re: óábyrgt hjal!!

í Flug fyrir 23 árum
Það er alveg satt hjá þér Parks, við verðum að passa okkur. deTrix

Re: Jórvík - Einkaflug

í Flug fyrir 23 árum
Svar þitt Sepecat, lýsir því best hversvegna þú átt ekki að vera segja frá einhverju hérna. Þú gerir þér greinilega ekki grein fyrir því að þú getur ekki komið með fullyrðingar um eitt og annað, þegar það eina sem þú hefur fyrir þeim eru þeir menn sem hafa staðið í deilu við Jórvíkinga. Svo má e.t.v. líka segja að ef þú hefðir eitthvað vit á málinu hefðir þú vitað að þetta var komið í óefni hjá þeim áður en þeir byrjuðu á Vestmannaeyjafluginu… deTrix

Re: Jórvík - Einkaflug

í Flug fyrir 23 árum
Ok 4Luv, þetta er líklegast rétt hjá þér, það er komið nóg af þessu… Hvernig sem þessu öllu saman er farið að þá er alltaf sagt að satt megi best kjurt liggja… á það ekki enn við? deTrix

Re: Jórvík - Einkaflug

í Flug fyrir 23 árum
Þetta er kannski ekki alveg mín skilgreining á fjallabaksleið sepecat, en það er alveg satt, þeir eru búnir að koma sér allstaðar út úr húsi. Lowpass: Þú gengur og langt með að kalla menn lygara hérna… þeir sem þekkja málið aðeins betur en þú, sjá að þú ert ekki að fara rétt með staðreyndir… En annars er það alveg rétt hjá þér, þú þarft að borga fólki og fyrirtækjum það sem þú skuldar því, annars ertu bara gera illt verra… Fór viðhaldið ekki til DK af því að þeir voru búnir að koma sér...

Re: Jórvík - Einkaflug

í Flug fyrir 23 árum
Veistu afhverju vélarnar voru í viðhaldi í DK?

Re: Flugslys TF-POU

í Flug fyrir 23 árum
Hvernig væri að fljúga bara í nægri hæð?

Re: Jórvík - Einkaflug

í Flug fyrir 23 árum
Þegar ég segi að það gangi ekki það sama yfir alla, þá á ég við að þegar einn gerir eitthvað fær hann ekki sömu meðferð og þegar einhver annar gerir hið sama. Að tala um að sá sem reynir alltaf að fara “óprúttnar leiðir” fái einhver önnur viðbrögð er bara fáránlegt… auðvitað fær hann önnur viðbrögð en góði strákurinn… Jórvík er vissulega umdeilt fyrirtæki, en hverjar eru fjallabaksleiðirnar sem þeir eru að fara? Það eina sem mér sýnist að eigi eftir að breytast með Jórvík er að í dag eru...

Re: Jórvík - Einkaflug

í Flug fyrir 23 árum
Það gengur ekki það sama yfir alla, það hefur löngum verið vitað…

Re: Prófið svifflugið, það er engu líkt.

í Flug fyrir 23 árum
Ef maður hefur einhvern áhuga á því að fljúga að staðaldri, hefur maður einhvern möguleika á því að leigja bara vél eða þarf maður að eiga? Ef maður getur leigt vél, hvað kostar það þá? Er þá mælt pr. klst. eins og í flugi? Hvað kostar annars svona sviffluga og hver er rekstrarkostnaðurinn (þ.m.t. viðhald og tryggingar)? Kveðja, deTrix

Re: Jórvík - Einkaflug

í Flug fyrir 23 árum
Þó ég sé nú sammála flestu því sem sagt hefur verið hér að ofan finnst mér þú Mazoo ganga of langt. Ég get bent á 7 staðreyndavillur í síðari málsgrein þinni, sem þýðir að e.t.v. hefði verið betra fyrir þig að sleppa þessu svari… deTrix

Re: Jórvík - Einkaflug

í Flug fyrir 23 árum
Ég vil ekkert kommenta á “rekstrarfyrirmæli” FMS þar sem ég þekki þau ekki, en mér finnst rosalegt þegar menn gera svona lagað. Einhverntíman hefði flugmálastjóri farið með skærinn, tekið flugrekstrarleyfið og klippt það… Eins og þið vitið sem sækiði þennan vef reglulega að þá hef ég viljað styðja Jórvíkurmenn í baráttu sinni, en að mínu mati hafa þeir skotið sig í fótinn með þessu. deTrix

Re: Afmæli hjá Geirfugli

í Flug fyrir 23 árum
Til hamingju með afmælið Geirfuglar… deTrix :)
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok