Segja vil ég sögu af sveinunum þeim, sem brugðu sér hér forðum á bæina heim. Þeir uppi á fjöllum sáust, - eins og margur veit, - í langri halarófu á leið niður í sveit. Grýla var þeirra móðir og gaf þeim tröllamjólk, en pabbinn Leppalúði, - það var leiðindafólk. Þeir jólasveinar nefndust, - um jólin birtust þeir. Og einn og einn þeir komu, en aldrei tveir og tveir. Þeir voru þrettán þessir heiðursmenn, sem ekki vildu ónáða allir í senn. Að dyrunum þeir læddust og drógu lokuna úr. Og einna...