Þetta var fjör…… Hvorugt liðið var mætt fullskipað á umsömdum tíma en þá ákváðum við að spila 4 á móti 4 og hafa þetta 3 leiki.

Mættir voru :
Ice Family : Iceman, Nems, Freezer og Phoenix.
Bene Tleilax : DaXes, BearZon, ArNet og Maverick.

Í fyrsta leiknum var Árni skotinn út mjög fljótt, ég náði ég Val fljótlega og Daði Óðni. Ég klikkaði herfilega og Sveinbjörn náði mér og þá var það búið. Ég átti annars gott færi á Sveinbjörn…en auðvitað átti hann gott færi á mig á móti.

Í seinni leiknum voru hlutir í kyrrstöðu framan af, en svo vorum við einfaldlega teknir í bakaríið og Ice Family missti ekki mann.

Eftir 2 leiki ákváðum við að fara að leika okkur með hinum sem voru mættir, enda voru yfir 20 manns í Lundi þetta kvöld.

kv,
DaXes