Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

daiji
daiji Notandi frá fornöld 102 stig
Áhugamál: Bardagaíþróttir, Box

Box á Ljósanótt, 4. september (0 álit)

í Box fyrir 14 árum, 8 mánuðum
Íslendingar taka á móti Dönum í sannkallaðri hnefaleikaveislu í gömlu sundhöllinni við Framnesveg í Keflavík föstudaginn 4. september næstkomandi. Keppnin er liður í Ljósanæturhátíðinni og hefur verið haldin árlega um nokkurra ára skeið. Komdu og upplifðu einstakt andrúmsloft og horfðu á 11 hörkuviðureignir! Af okkar mönnum í Hnefaleikafélagi Reykjaness (HFR) mæta til leiks fjórir keppendur. Ástþór Sindri Baldursson fær verðugan andstæðing frá Hnefaleikafélagi Hafnarfjarðar (HFH), Tom...

Kynningarmyndband HFR (0 álit)

í Box fyrir 14 árum, 8 mánuðum
http://www.youtube.com/watch?v=_HNrl-WZWZQ

Íslandsmótið í hnefaleikum 2009 (20 álit)

í Bardagaíþróttir fyrir 15 árum
Íslandsmótið fer fram laugardaginn 18. apríl í gömlu sundhöllinni í Keflavík. Aðgangseyrir er 1.000 kr. 1. viðureign - Léttvigt drengja (60 kg) - 3 x 2 mín Elías Shamsudin (HFÆ) vs Hafsteinn Smári Óskarsson (HFR) 2. viðureign - Léttveltivigt drengja (64 kg) - 3 x 2 mín Hinrik Ragnar Helgason (HFÆ) vs Oddur Steinn Einarsson (HR) 3. viðureign - Veltivigt drengja (69 kg) - 3 x 2 mín Gunnar Gray (HFÆ) vs Pétur Ásgeirsson (HFR) 4. viðureign - Fjaðurvigt kvenna (57 kg) - 3 x 2 mín Ásdís Rósa...

Hnefaleikamót í Reykjanesbæ 14. mars kl. 19:00 (1 álit)

í Box fyrir 15 árum, 1 mánuði
Hnefaleikamót í Reykjanesbæ http://vefpostur.internet.is/nelson/ymis/augl14mars-web.jpg

Stórmót gegn dönum í Reykjanesbæ 31. janúar (5 álit)

í Bardagaíþróttir fyrir 15 árum, 3 mánuðum
HNEFALEIKAR - Laugardaginn 31. janúar næstkomandi verður haldið stórmót gegn úrvalsliði dana í gömlu sundhöllinni við Framnesveg í Keflavík. Danirnir verða 13 talsins og auk þess verða 5 alíslenskir bardagar. Keppni hefst kl. 19:00 en húsið opnar 18:30. Aðgangseyrir er 1.000 kr. Davíð Rafn Björgvinsson (HR) vs Gunnar Guðlaugsson (HR) Gunnar Gray (HFÆ) vs Hafsteinn Smári Óskarsson (HFR) Dina Thorslund (Team Denmark) vs Sara Rós Pétursdóttir (HFH) Hinrik R. Helgason (HFÆ) vs Arnór Már Grímsson...

Hnefaleikamót í Reykjanesbæ, 22. nóvember (9 álit)

í Box fyrir 15 árum, 5 mánuðum
Hnefaleikamót verður haldið í gömlu sundhöllinni í Keflavík þann 22. nóvember. Fyrsta viðureign hefst kl. 19:00. Aðgangseyrir er 1.000 kr / 500 kr fyrir yngri en 12 ára. Nokkrir bardaganna verða: Daníel Þórðarson (HFR) vs Kieran Treacy (Bracken BC) Hafsteinn Smári Óskarsson (HFR) vs Adam Freyr Daðason (HFH) Vikar Karl Sigurjónsson (HFR) vs Gunnar Kolli Kristinsson (HFÆ) Frekari upplýsingar verða auglýstar þegar nær dregur.

56 fantasíukiljur til sölu (tilboð óskast) (5 álit)

í Ævintýrabókmenntir fyrir 16 árum, 9 mánuðum
Vegna flutninga er ég að selja fullan kassa af kiljum. Þær eru langflestar í mjög góðu ásigkomulagi, kannski 2-3 smá rifnar og/eða eilítið sjúskaðar. Kiljurnar eru alls 56 talsins og langflestar úr FORGOTTEN REALMS heiminum. Þær seljast allar saman í kassanum og þið getið gert tilboð í safnið þangað til kl. 12 á miðnætti annað kvöld, annað hvort hér á korkinn eða með skilaboði. Hæsta tilboð fyrir tímamörk gildir og viðkomandi verður að sækja kassann sjálfur (bý í Hafnarfirði) fyrir helgina....

Staðan fyrir Íslandsmeistaramótið (9 álit)

í Box fyrir 17 árum, 1 mánuði
YFIRÞUNGAVIGT (+91 kg) 1. Skúli Ármannsson ÞUNGAVIGT (91 kg) MEISTARI: Lárus Mikael Daníelsson 1. Arnar Ó. Bjarnason 2. Markús Már Óskarsson LÉTTÞUNGAVIGT (81 kg) MEISTARI: Guðmundur Jónsson 1. Vikar Karl Sigurjónsson MILLIVIGT (75 kg) MEISTARI: Stefán Breiðfjörð 1. Bjarki Bragason 2. Alexei Páll Siggeirsson 3. Tómas Þór Þorsteinsson VELTIVIGT (69 kg) MEISTARI: Þórir Fannar Þórisson 1. Daníel Þórðarson 2. Viðar Freyr Viðarsson 3. Dagur Páll Ammendrup LÉTTVELTIVIGT (64 kg) MEISTARI: Gunnar...

Ódýrasta flug til Los Angeles? (3 álit)

í Ferðalög fyrir 17 árum, 9 mánuðum
Ég er á leiðinni til Los Angeles í janúar og er í miklum vandræðum með að finna út úr því hver ódýrasta leiðin er! Ég er að fara í algjöra budget ferð og þarf að passa upp á hvern eyri. Ég er búinn að reyna að skoða möguleikana á því að fljúga t.d. til New York og þaðan áfram til L.A. eða þá að fljúga til San Francisco og taka lestina til L.A., en þetta rýkur einhvern veginn allt upp úr valdi. Getur einhver hjálpað mér? Þetta er pílagrímsferð sem ég fer líklega aðeins einu sinni á ævinni og...

Sparr á Akureyri (2 álit)

í Box fyrir 17 árum, 9 mánuðum
Ég verð á Akureyri alla næstu viku og er að velta því fyrir mér hvort það sé ekki einhver fyrir norðan sem væri til í smá sparr einu sinni, tvisvar eða þrisvar í næstu viku. Hæð og þyngd skiptir ekki máli, en ég vil helst fá einhvern sem getur alla vega boxað betur en Gillzenegger! Get tekið með mér hanska norður ef það er vandamál, en góminn og aðstöðuna (bara smá gólfpláss) yrði viðkomandi að skaffa. Látið mig endilega vita!

Doddy Sævarsson hreppir silfur í Gautaborg (1 álit)

í Box fyrir 18 árum, 5 mánuðum
Þórður “Doddy” Sævarsson komst í úrslit á stóru fjölþjóðlegu móti í Gautaborg nú um helgina. Þarna voru um 400 keppendur frá 30 evrópskum klúbbum. Á fjögurra ára fresti er þetta mót úrtökumót fyrir Ólympíuleika. Doddy lagði fyrri andstæðing sinn með yfirburðum eftir fjögurra lotu viðureign og mætti svo í úrslitum norska meistaranum Mahdi Mohseni frá Oslo BK. Mohseni er með rúmlega 100 bardaga á ferlinum og voru menn vissir um að hann myndi bara pakka Dodda saman. Doddy hélt nú ekki og háði...

Doddy var að vinna silfur á DM (1 álit)

í Box fyrir 19 árum, 1 mánuði
Fyrrverandi skjólstæðingur minn, Þórður “Doddy” Sævarsson, var um helgina að vinna sér inn silfurverðlaun í 60 kg flokki (léttvigt) á Danska Meistaramótinu. Doddy hefur verið að æfa og keppa með danska félaginu SIK Fight í vetur og kemur heim á klakann í vikunni til þess að fást við breska meistarann í 64 kg flokki (léttveltivigt), Michael Bailey. Allir að mæta á Broadway og styðja Dodda!

8. mars undercard! (1 álit)

í Box fyrir 21 árum, 1 mánuði
Veit einhver við hverja þeir Gunnar Óli og Ingþór kepptu við á undercardinu? Helst vantar mig full nöfn…. Takk…

Tattú? (2 álit)

í Box fyrir 21 árum, 2 mánuðum
Jæja Skúli, ætla menn að feta í fótspor goðsins og flúra á sér augað? :)

BOXING.is... (3 álit)

í Box fyrir 21 árum, 4 mánuðum
Mér þætti gaman að heyra hugmyndir ykkar betra BOXING.is… hvað finnst ykkur gott og hvað finnst ykkur að mætti fara betur? Síðan er í stöðugri vinnslu og auðvitað ekki hægt þóknast öllum… en það væri sama hvað því líður gaman að heyra hugmyndir, eitthvað til þess að hafa á bak við eyrun… :)

BOXING.is í gang aftur (4 álit)

í Box fyrir 21 árum, 4 mánuðum
BOXING.is er komin í lag aftur eftir smá pásu vegna tæknilegra örðugleika…

BetRAUNARhúsið (1 álit)

í Box fyrir 21 árum, 6 mánuðum
Þetta var skondin villa hjá þér, því það er raun að æfa í BetRUNARhúsinu… Nema þú sérð algjör chocokleina með aflitað hár, tribal tattoo og æfir helst ekki nema þú sért í appelsínugulum hlýrabol. BAG rules… Vel þess virði að fara þangað og æfa.

Klitschko (4 álit)

í Box fyrir 21 árum, 7 mánuðum
Hægt er að downloada og horfa á hvern einn og einasta bardaga þeirra bræðra á Klitschko.com… ókeypis…

Íslenski Hnefaleikavefur (1 álit)

í Box fyrir 23 árum, 6 mánuðum
Ég vil bara benda öllum á nýja og ýtarlega heimasíðu um box og boxara sem nú er komin af stað. Slóðin er “www.geocities.com/superfights2000/” Þeir sem hafa áhuga á að skrifa inn greinar mega senda mér póst á “daiji@hotmail.com”… Látið mig vita hvað ykkur finnst…
  • Síður:
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok