Það eru engir boxarar virkir sem eru með nógu mikla reynslu og kunnáttu til þess að tilnefna á slíkan lista. Fyrir nokkrum árum voru hér virkir strákar sem þrátt fyrir alla sína galla voru mjög reyndir og virkilega búnir að finna sig í hringnum. Þessir strákar eru allir hættir eða óvirkir. Gunnar Þór Þórsson úr HR er sá efnilegasti í dag, en hann á heilmikið ólært eins og allir aðrir.