Vert er að geta rannsókna sem hafa komið fram á undaförnum árum um tengsl kannabisnotkunar og meiri háttar geðsjúkdóma með geðrofseinkennum (psychosis), bæði við bráð skammvinn geðrofseinkenni, en þó ekki ekki síst geðklofaeinkenna. Geðklofasýki er alvarlegur geðsjúkdómur sem setur mark á allan æviferil sjúklings. Algengi geðklofasýki (skitsofreníu) er lágt eða um 1% og er merkilega stöðugt bæði milli landa og yfir tíma. Þekkt yfirlitsgrein Moore og félaga sem birtist í Lancet 2007 frá...