Mig dreymdi aðfaranótt mánudagsins, 20. maí draum sem tengdist heimi Tolkien. Mig langaði að deila þessum draumi með ykkur og fá að vita í leiðinni hvort eitthvað líkt þessu hafi hent ykkur.

Eins snemma og ég man í draumnum er það að ég var staddur í dal og var meðal mikilla bardagamanna, manna, dverga, álfa og meira að segja hobbita. Ég gerði mér grein fyrir að ég var hobbitinn Sam. Allt einu fór einn mannanna sem voru þarna upp fjall og eltu börn hann. Ég og vinur minn hlupum á eftir hópnum(þetta er vinur úr mínu raunverulega lífi en hér skulum við kalla hann Pippin). Nokkur börn spurðu hvort annað hvert þessi maður væri að fara og svöruðu nokkur að hann væri að fara að skoða her Mordor.

Þegar að við vorum komnir á hæsta tind fjallsins blasti við okkur stór her trölla, orka, manna, galdramanna og Nazgúla. Við horfðum lengi vel og það sem mér fannst skrýtnast að það voru margir galdramenn þarna og man ég eftir einum í alveg hvítu(mjög líklega Saruman) og síðan man ég eftir einum í alveg bláu með gulum stjörnum á(svona ekta galdrakall úr farytail sögu).

Pippin sagði við mig: “Þeir eru allir svo litlir.”

Ég svaraði á móti: “Nei(og benti á tröllin)tröllin eru stór og galdramennirnir og Nazgúlarnir.

Eftir þetta tók ég eftir að Gandalf skaust á hvítum hesti þarna framhjá og ég elti hann einn. Allt í einu tók ég eftir að Gandalf var að elta Frodo(vinur minn úr mínu rauverulega lífi en hér er hann í hlutverki Frodo). Ég hljóp eins hratt og ég gat til Frodo því ég tók eftir því að hann var dauðhræddur við Gandalf. Ég náði að hlaupa til Frodo á einhvern undarlegan hátt áður en að Gandalf náði til hans og nú vorum við staddir á milli vel klipptra runna(svona eins og í endanum á The Shining) og Gandalf kom á miklum hraða í átt til okkar. Ég sagði Frodo að fara upp stiga sem var þarna rétt hjá og hann gerði það. Nú snúði ég mér í áttina að Gandalf en sá nú að þetta var orki á hvítum hesti. Hann dró upp sverð sem glitraði. Á einhvern hátt greip ég sverðið(sem glitraði og voru álfarúnir á því)og náði að stinga orkann, með þeim afleiðingum að hann datt af hestinum.

Ég leit niður og sá orkann dauðan niðri á jörðinni og hljóp upp stigann til Frodo. Þar kom ég að honum og hann horfði út í allar áttir að svipast eftir hættu. Þegar að hann sá mig spurði hann reiður: ”Hvar er hringurinn?“, ég svaraði að orkinn væri með hann.

Frodo:”Þá ertu búinn að týna honum!“
Ég kvíslaði að honum: ”Það veit enginn hvar orkinn er“
Frodo: ”Sæktu hringinn núna"

Ég fór af stað til að sækja hringinn og þegar að ég kom niður var allt á sínum stað. Orkinn lá þarna enn á jörðinni og einnig lágu aðrir þrír hlutir þarna: tveir hringir og sverðið. Ég tók upp hringina tvo og var á leiðinni upp stigann þegar að ég mætti Pippin og Merry(einnig ónefndur aðili úr lífi mínu). Pippin spurði hvað ég væri með. Ég tók upp einn hringinn, en ekki hringinn eina því ég vissi að þeir myndu girnast hann, og sagði að þetta væri kóngahringur. Þeir gengu í burtu eins og ekkert hafði gerst og ég hljóp upp stigann. Þegar að ég kom upp var Frodo horfinn og líka hringurinn eini úr hendinni minni og það eina sem ég hafði var kóngahringurinn sem ég virti fyrir mér og var hann gullfallegur hringur með demant. Þarna endaði draumurinn.