Er ekki verið að tala um að þeim upplýsingum verði haldið leyndum fyrir utanaðkomandi aðilum, eins og eðlilegt er. Það er náttúrulega nauðsynlegt að gefa upp vissar upplýsingar þegar skrá á hlutabréf á nafn einhvers. Þegar að ég datt inn á þessa síðu varð maður að sjálfsögðu efins um ágæti þessa batterís. Alltaf betra að hafa vaðið fyrir neðan sig þegar internetið er annars vegar, ekki satt? Því skannaði ég netið aðeins í leit að einhverjum viðvörunum um þessa síðu. Fann hinsvegar ekkert...