Hefur einnhver náð að lokka einnhverja góða/spennandi útlendinga til að spila fyrir sig á Íslandi ? Ég er að spila með Þrótt og gengur erfiðlega að finna útlendinga sem vilja koma til mín.

Getur einnhver mælt með einnhverjum góðum ? Ég náði reyndar að lokka til mín Mustapha Hadji, fyrrverandi leikmann Espanyol, Aston Villa, Coventry og Deportivo.. Hann er kominn á síðasta séns, en samt mjög góður fyrir lið á íslandi.

Einnig náði ég að fá til mín mann að nafni Onandi Lowe frá Jamaica, hann var hjá Portmore UTD í ensku utandeildinni, ég borgaði 4K fyrir þennan magnaða striker sem skoraði 9 mörk í 12 leikjum hjá mér og hjálpaði mér að vinna fyrstu deildina á fyrsta tímabili, og er búinn að skora 6 mörk í 6 leikjum hjá mér á undirbúningstímabilinu.


Endilega segið frá fleiri leikmönnum sem eru til í að koma til Íslands :)