Golan lék um vanga hans þegar hann steig út úr gulu Volkswagon bjöllunni fyrir framan Hovedbanegården lestarstöðina. Þetta var kannski ekki hraðskreiðasti bílinn sem skreið um götur Kaupmannahafnar, hinsvegar hafði hann þjónað eiganda sínum ágætlega í gegnum tíðina. Ætla ég virkilega að gera þetta? Hugsaði hann. Já, þetta er eina leiðin. Þessi dagur hafði byrjað eins og hver annar dagur í tilveru hans. Hann fór á fætur, fékk sér tvær skálar af Cheerios eins og alla aðra daga. Þessi dagur...