Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

coot
coot Notandi síðan fyrir 21 árum, 1 mánuði 39 ára karlmaður
646 stig

Re: Leiklist?

í Leikhús fyrir 19 árum, 9 mánuðum
-já, ýkt mikið marr. -tvem grunskóla og tvem áhugamanna -annað grunnskólaleikritið var frasi, hét daddi, dabbi eða eitthvað, innihélt allavega dagbók. Svo hét hitt Guli flamingóinn og var frumsamið eftir Berg Ingólfs. Ég lék svo Mark Renton í uppfærslu LK af Trainspotting (eða Að treina spottan eins og Megas orðaði það) og að lokum frumsamið leikrit Vox arena og LK Mamma þín. -Ekkert gerir mig jafn þunglyndan, samt í alvörinni er það besta við leiklist er mómentið sem þekur fyrstu 15...

Re: Tákngervingur Vestrænna gilda

í Ljóð fyrir 19 árum, 9 mánuðum
Takk takk, gaman að fá stjórnanda sem viðurkennir framsækna ljóðlist

Re: Ert þú með lausn á deilunni? - eða bara enn einn áróðurinn

í Deiglan fyrir 19 árum, 9 mánuðum
Af hverju þurfa þeir að vera fyrri til og viðurkenna ísraelskt ríki heldur en við að taka fyrsta skrefið og viðurkenna palestínskt ríki? Og afhverju beini ég þessu bara gegn Ísraelsmönnum? Af því að í þessari umræðu er bara fólk sem er hliðholt ísrael sem notfærir sér söguna með þessum hætti. Hinir eru að reyna að benda á að sagan réttlætir ekkert. En þú verður að viðurkenna að við höfum kallað að okkur þessa hryðjuverkaógn. Máli mínu til stuðnings vill ég nefna ða það eru ekki bara múslimar...

Re: Ert þú með lausn á deilunni? - eða bara enn einn áróðurinn

í Deiglan fyrir 19 árum, 9 mánuðum
So fokking what??? Hvað máli skiptir það hver bjó þarna fyrst. Áður en gyðingar bjuggu þarna bjuggu einhverjir aðrir og áður en þeir bjuggu þarna voru einhverjir aðrir. Findu eitthvað landsvæði í þessum heimi sem sömu aðillarnir hafa búað í 3000 ár? ekki einusinni það, ég held að 1000 ár ætti að nægja. Ísraelar, sem og öll vestræn þjóðfélög hafa brotið á mannréttindum Palestínumanna allt of lengi. Múslimaheimurinn vill hefna sín. Þú sérð það að þetta er ekki „þeim“ að kenna. Vitaskuld bera...

Re: Art fart

í Leikhús fyrir 19 árum, 9 mánuðum
Að hugsa með sér hvað eitt lítið leiklistaráhugamál gæti haft góð áhrif fyrir áhugafólk um leiklist, þar gæti maður verið með á nótunum um slíka atburði.

Re: Hanthala býður ofureflinu birgin

í Deiglan fyrir 19 árum, 9 mánuðum
Meira að segja linkarnir frá wikipediu virka ekki, en með því að nota handahófskendar ýtingar tóks mér að finna þónokkrar teikningar: http://najialali.hanaa.net/naji_rasmo.html Einnig fann ég flotta umsögn Naji Al-Ali um Handala með google-leit: http://www.flickr.com/photos/foulla/68766245/

Re: Samsæriskenningar

í Deiglan fyrir 19 árum, 9 mánuðum
Enda var ég hvorki að kalla BNA fasistaríki né alræðisríki, gaf einungis í skyn að það væri hægt að skylgreina BNA sem slíkt og benti að lokum á að það væri öfgakennt að gera slíkt. Rökræðan er byggð á misskilningi

Re: Samsæriskenningar

í Deiglan fyrir 19 árum, 9 mánuðum
Bush er að færast stöðugt nær fasistanum sérstaklega í ljósi síðasta útspils hans þar sem hann minkaði réttindi samkynhneygðra og það væri hægt að skylgreina BNA sem alræðisríki í ljósi kosninganna árið 2000, þó slíkt myndi ganga úr öllum öfgum. Hins vegar skil ég ekki hvað þú ert að blanda því inn í þetta þar sem ég var einungis að vitna í alræmdasta blekkingamann síðari ára

Re: Samsæriskenningar

í Deiglan fyrir 19 árum, 9 mánuðum
Hitler sagði að ef maður segði lýgina nógu hátt og oft þá fer fólk að trúa henni

Re: Ísraelar = Fasistar

í Deiglan fyrir 19 árum, 9 mánuðum
Hefurðu heyrt heilræðið að þú eigir aldrei að rökræða við fávita, því hann kemur þér niður á sitt stig og sigrar að lokum á reynslu. Vitur maður heldur sér því frá slíkum rökræðum. Ef við setjum þetta í stærra samhengi og segjum að þeð séu tveir stórir hópar sem kljást (Ísrael gegn Arabaríkjum). Þar sem þú fullyrtir að „miðaldahugsunarhátturinn“ væri ríkjandi hjá Arabaríkjunum, hvert stefnir þá Ísrael? Og hvor mun standa sem sigurvegari ef fávitaskapurinn heldur áfram á báða bóga? Þú ert...

Re: Árásin á SÞ hvað vissu þeir mikið?

í Deiglan fyrir 19 árum, 9 mánuðum
Óhuggnalegt þetta gamla testamennt. Og svo er fólk að kvarta undan kóraninum og allt sem stendur í honum varðandi Jíhad

Re: Aðgerðir Ísraelsmanna gegn Hezbollah

í Deiglan fyrir 19 árum, 9 mánuðum
Sama sagan með ETA á Spáni. Kennir okkur að það eigi ekki að útiloka stjórnmálaflokka.

Re: Opið reitt bréf skrifað til íslenskra fjölmiðla í flýti.

í Deiglan fyrir 19 árum, 10 mánuðum
Færri árásir = minni þörf á hernaðaraðgerðum í Palestínu.Það er gott að við erum sammála

Re: Opið reitt bréf skrifað til íslenskra fjölmiðla í flýti.

í Deiglan fyrir 19 árum, 10 mánuðum
Þetta er ekki villimennska í þeirra augum heldur menning. Þessi menning er til kominn að einhverri ástæðu. Ég tel mjög miklar líkur á að ástæðan sé ofbeldi. Fyrst ofbeldi bjó til vandan þá mun frekara ofbeldi væntanlega viðhalda vandanum og þar af leiðandi þessari villimennsku. Hvernig er hægt að semja við svona fólk spyrð þú. Ekki veit ég en ég myndi allavega frekar semja við mann sem er nýbúinn að bjóða mér í mat heldur en mann sem er nýbúinn að slá mig.

Re: Opið reitt bréf skrifað til íslenskra fjölmiðla í flýti.

í Deiglan fyrir 19 árum, 10 mánuðum
Munurinn er skýr, allavega munurinn á því hvernig ríkin fremja mannréttindabrotin sín. En á meðan þau eru framin þá eru aðillarnir sem fremja þau hver öðrum verri. Og ekki segja að Ísraela fremji þau ekki því það er réttur manna að fá að lifa og því er það mannréttindabrot að svipta sakleysingjum þeim réttindum.

Re: Opið reitt bréf skrifað til íslenskra fjölmiðla í flýti.

í Deiglan fyrir 19 árum, 10 mánuðum
Ertu blindur fyrir afleiðingum aðgerða Ísrealsmann vegna „réttlætingu“ aðgerðanna. Aðgerðirnar stuðla ekki að friði, aðgerðirnar uppræta ekki hryðjuverk og aðgerðirnar drepa fleiri saklausa en hamasliða. Þó þeir sprengi ekki út í bláin þá eru þessar hernaðarlegu aðgerðir þeirra með engu móti réttlætanlegar. Og ef það er barnaskapur og óskhyggja að ríki eins og Ísrael leggi niður vopn og verði friðsamleg þjóð, hvað segir það þá um Ísrael? Kannski er heimurinn ekki nógu einfaldur og fallegur...

Re: Opið reitt bréf skrifað til íslenskra fjölmiðla í flýti.

í Deiglan fyrir 19 árum, 10 mánuðum
Þótt þú lítir framhjá illskunni þá firrist hún ekki engu að síður. Þú skalt ekki mann deyða. Sá sem myrðir mann og iðrast ekki er samkvæmt minni skilgreiningu illur. Hundruðir hafa farist sökum Ísraelsmanna (sem og palestínumanna, bna-manna, kínverja o.s.frv, o.s.frv.) þar sem ætluninn var að myrða menn. Og hví er svona nauðsýnlegt að verja ríki sitt með harkalegum aðferðum. Þær vinda upp á sig, sýndu hörku og það verður tekið harkalega á þér. Ég trúi ekki á karma en samfélög heimsins veita...

Re: Opið reitt bréf skrifað til íslenskra fjölmiðla í flýti.

í Deiglan fyrir 19 árum, 10 mánuðum
Já, sem betur fer er siðmenntaðari þjóðin í sterkari stöðunni og fer mannúðlegri leiðir til að verja ríki sitt. Samt sem áður er hún algjörlega siðblind og gengur þvert á mannúðlegar leiðir í að verja sig. Það má vera að Palestínumenn séu verri, ég veit það ekki. Sklausir, konur sem börn farast í sprengjum beggja. En þú hlýtur að vita að á meðan morð eru framin, hvort sem morð sem eru réttlædd af ríkistjórn Ísraela eða fordæmd af sömu aðillum, þá er ekki vottur af mannúð, og á meðan orka er...

Re: Opið reitt bréf skrifað til íslenskra fjölmiðla í flýti.

í Deiglan fyrir 19 árum, 10 mánuðum
Við verðum að passa okkur að tína ekki því illa sem Ísraelsher fremur bakvið það góða sem Ísraelsríki gerir.

Re: Opið reitt bréf skrifað til íslenskra fjölmiðla í flýti.

í Deiglan fyrir 19 árum, 10 mánuðum
Sú mynd hefur verið dreginn að friðarsinnum að þeir séu allir hliðhollir Palestínu í öllu og öllum þeirra aðgerðum,hryðjuverkum eða ekki. Ástæðan fyrir því er að meirihluti þeirra tekur afstöðu á móti Ísrael. Og fyrst við erum á móti herstefnu Ísraela hljótum við að réttlæta hryðjuverk, ekki satt? Nei! Að vera friðarsinni er að aðhyllast aðgerðir í átt til friðar án beytingu aðferða sem skaðar fólk, saklaust eður ei. Hins vegar getum við ekki horft framhjá þeirri staðreynd að Ísraelar eiga...

Re: Opið reitt bréf skrifað til íslenskra fjölmiðla í flýti.

í Deiglan fyrir 19 árum, 10 mánuðum
Mjög gott og hnitmiðað svar verður að segjast. En sökum þess að ég er þér ósammála ætla ég að setja fram smávægilega gagnrýni á svar þitt og koma með mitt álit í leiðinni. Eitt er ljóst, fólk er mjög gjarnt á að setja upp þessar stöðluðu myndir af aðaillanum sem þeir þeir gagnrýna, þ.e. Palestínumenn eru hryðjuverkamenn sem myrða saklausa borgara með sjálfsmorðsárásum og Ísraelar eru ódæðismenn sem níðast á hrjáðri þjóð sem á sín einskis gagnvart níðingsverkum öflugasta herafla heims. Þú...

Re: Tæknileg bilun.

í Smásögur fyrir 19 árum, 10 mánuðum
Takk fyrir þetta innlegg. Maður er orðin dauðþreyttur á öllum þessum vejulegu og illa skrifuðu 13ára-strákastelpusögum sem allar eru nákvæmlega eins. Engu að síður var þetta frábær örsaga, ljóðræn og myndræn (á sinn hátt). 13 af 15,25 þumlar upp

Re: "Drekkjum Valgerði en ekki Íslandi" og Che Guevara

í Deiglan fyrir 19 árum, 11 mánuðum
Valgerður kúkaði á sig sem iðnaðarráðherra og spilar sjálfan sig sem fornarlamb til að fá samúð með landsmönnum, einfallt mál. Annars hefði hún ekki tekið þessu svona alvarlega. Og nú fer hún í utanríkisráðherran, til að gera hvað? Jú, ábyggilega til að kynna landið fyrir utanaðkomandi atvinnu-stórmengurum.

Re: Heimsvaldastefna BNA í vegi fyrir friði

í Deiglan fyrir 19 árum, 11 mánuðum
Mér heyrist þú vinur minn vera nú þegar staðfastur á þínum yfirborðskenndu skoðunum, en ég ætla samt að reyna að telja þér hugkvarfs. Sprengja þessa helvítis villimenn aftur til fortíðar segir þú. Jamm, ég hef heyrt þessa tillögu áður. En já, spurning: Hvernig mun það leysa þann vanda sem þú kýst að kalla villimennsku í mið-austurlöndum? Frekar að það auki vandan? Fleytum frekar þessum „helvítis villimönnum“ til nútíðar, þar sem þeir þurfa ekka að vera að standa í sjálfsmorðsprengjuárásum...

Re: Heimsvaldastefna BNA í vegi fyrir friði

í Deiglan fyrir 19 árum, 11 mánuðum
Ég held að fólk sé ekkert mikið að spá í lögum og reglum þegar það er að kljást við alræmdan einræðisherra
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok