Á sama tíma var í gær ekki minnst EINU orði á ástandið á Gaza í morgunblaðinu! Í fréttablaðinu í dag er bara talað um mótmælabréf sem vinstri grænir sendu ísraelsstjórn í agnarsmárri klausu á síðu 8!HVAÐ ER Í GANGI!!! ERUÐI GERSAMLEGA SIÐBLIND???

Lesið ykkur til um þetta og takið harða afstöðu gegn þessu óréttlætanlega ólöglega hernámi sem er að bitna á 1 og hálfri milljón saklausra palestínumanna. Ef fjölmiðlar hætta ekki að birta nánast einhliða útgáfu Ísraela og bandaríkjamanna af framvindu mála verður ekkert gert til að stöðva þennan óskapnað.

Eruði virkilega fylgjandi stríði?? Ef ekki, vinsamlegast sitjið ekki aðgerðarlaus á meðan verið er að valta yfir varnarlausa þjóð í markvissri tilraun til að útrýma Palestínu fyrir fullt og allt. Þessi átök eru líka til þess fallinn að draga aðrar þjóðir í miðausturlöndum til að koma palestínumönnum til bjargar og þá mun skella á allsherjarstríð sem allir ættu að gera allt sem í þeirra valdi stendur til að stöðva. SÉRSTAKLEGA FJÖLMIÐLAR!

Hér eru örfáar greinar frá virtum miðlum sem ég vona að þið lesið og fjallið um. Finnið það í hjarta ykkur að sitja ekki hjá á meðan stríðsglæpir eiga sér stað.

Af hverju þarf ég, 21 árs drengur að þurfa að standa í því að senda ykkur bréf til að sjá til þess að þið vinnið vinnu ykkar? (þ.e.a.s. að upplýsa fólk á hlutlausan hátt um ástand heimsmála)

http://www.truthout.org/docs_2006/070606J.shtml
http://www.aljazeera.com/me.asp?service_ID=11683
http://www.aljazeera.com/cgi%2Dbin/conspiracy%5Ftheory/fullstory.asp?id=329

Eða eigum við kannski bara að gleyma þessu, opna bjór og glápa á boltann?