Ingibjörg Sólrún þiggur 5. sæti Samfylkingarinnar Ingibjörg Sólrún Gísladóttir hefur samþykkt að skipa 5. sæti á lista Samfylkingarinnar í Reykjavíkurkjördæmi-norður í næstu þingkosningum. Össur Skarphéðinsson, formaður Samfylkingarinnar, staðfesti þetta í samtali við DV síðdegis í dag. Hann segist telja meiri líkur en minni á að 5. sætið sé öruggt þingsæti. “Fyrir nokkrum dögum bað ég Ingibjörgu Sólrúnu um að taka 5. sæti á öðrum lista Samfylkingarinnar, þ.e. þeim lista sem ég veiti...