Ég kom hingað fyrir tveimur áratugum síðan frá Kúbu (ég flúði ekki), og mér hefur gengið mjög vel að aðlagast íslenskri menningu og læra íslensku. Ég hef ekki orðið var við neina fordóma, og kannski er það vegna þess að ég er lyfjafræðingur og háskólamenntaður. Ég hef nefnilega oft heyrt fólk hérna tala um að það sé allt í lagi að fá fólk hingað sem er vel menntað, ekki ef það sem fer bara beint í fiskvinnslurnar. Hafið þið heyrt um svona lagað ?