Django er alveg rosalegur gítarleikari. Mér finnst ótrúlegt hvað hann getur spilað hratt bara með þrjá fingur á vinstri hendi. Í gærkvöldi lauk Django hátíð á Akureyri. Það var gaman að sjá hvernig Django djassinn hefur þróast, og komu þar fram margir snillingar, m.a. Björn Thoroddsen með tríóinu Hrafnasparki. Robin Nolan Trio spilaði líka, með söngvaranum Randy Greer. Ég mæli með að allir sem fíla Django Reinhardt fari á Django hátíðina á Akureyri næsta sumar.