Það má byrja strax að þjálfa og siða hundskinnið, því fyrr því betra. Aðalatriðið er að allir fjölskyldumeðlimir séu samstíga í því sem verið er að gera. Þannig að ef einn aðilinn bannar hundinum eitthvað, þá má ekki annar aðili leifa hundinum hlutinn sem hinn var búinn að banna, o.s.fr. Grundvallar atriði er að hundurinn finni traust, elsku og hlýju, og á því á að byggja alla þjálfun og kennslu. Það er langbest að hundinum sé búinn til ákveðinn “rammi” sem að allir eru sammála um, því að...