Já núna er maður búinn að næla sér í þetta helvítis kvef sem fylgir vetrinum. Var svolítið slöpp í gær og svo versnaði það alltaf með kvöldinu. Fór ekki að sofa fyrr en um 12(Var að horfa á Master and Commander, mæli með henni). En já kvefið mitt lýsist svona: Ég var í flíspeysu en mér var skítkalt, þannig að ég svaf inni hjá mömmu - hún er svo góður hitapoki. Ég var andvaka og sver það ég helt sko að ég væri andsetin eða eitthvað: Frá svona 2-3 var ég öll á iði, mér var ógeðslega heitt, mér...