Var inná síðu um daginn (reyndar bara rétt áðan) hjá 12 ára stelpum sem voru með myndir af sér þar sem þær voru með g-strengina langt uppá bak og myndir af einni með fyrrverandi kærasta sínum og ég bara ertu ekki að grínast í mér! 12 ára krakki sem á fyrrverandi kærasta! þegar ég var 12 ára þorði maður varla að viðurkenna ef manni fyndist einhver sætur!

Where is the world going people??!!

Síðan eru þessir krakkar byrjaðir að rífa kjaft við mann. Þegar ég var lítil var maður hræddur við unglinga, passaði sig að labba alveg upp við vegginn þegar maður mætti þeim en núna er að breytast í að maður er farinn að vera hræddur við litlu krakkana. Eins og í skólanum getur maður varla labbað heim ef það er snjór án þess að litlir krakkar kasti í mann - og svo má maður ekki gera neitt á móti því þá er manni kennt um allt!


Viðurkenni samt að ég nota svona “gelgjumál” á msninu, eins og geggt og svona, en ég reyni að gera ekki mikið af því, passa mig líka á að ég nota aldrei msn málið í skólanum þar nota ég alvöru íslensku.