jæja eða eitthvað þannig,

vinur minn er búinn að vera að bögga vinkonu mína mikið á msninu (samt svona í gríni) og jáá hann er að halda því fram að hún sé alkahólisti og svo skrifaði hann þetta í gestabókina sem mér persónulega finnst mjög svona - ja skondið segjum það bara. Þannig að ég copyaði þetta bara og ætla að setja hérna. Reyndar breytti ég öllum nöfnunum á vinkonu minni í *nafn* og annari vinkonu minni í *nafn2* því þær vilja örugglega ekki að ég sé að setja nöfnin þeirra hérna inná. Og þar sem ég tók þetta beint úr gestabókinni á síðunni hennar þá er stafsetningin ekki mér að kenna, nenni ekki að lagfæra þetta og gera þetta eitthvað flott. En allavega,
Here Goes:

heirðu! varstu að blokka mig!!!!
ég er hreinlega mjöööög móðgaður… og sár… og hneykslaður… og leiður… og dapur… og ekki ánægður með frammistöðuna… svo seturu mig í óvini!!!:O:O:O:O. Maður er að reyna að koma þér af óhófslegri drykkjusemi (eins og við bæði vitum að þú ert komin uppí háls af) og þú lítur á mig sem fjandmann! þetta er… iss… sko… það sem ég var að reyna að segja þér áður en þú blokkaðir mig á svona óumbeðinn hátt var að. Ég er ekki á neinn hátt ánægður með það að þú skulir vera að drekka eins og þú gerir… T.d. var ég einn daginn að vinna og þar kom eitt stikki hjón með eitt stikki strák og var augljóslega alkolistar (eins og ég er stór hræddur um að þú verður) anywho… það var eins og að horfa á dauðamanneskju sem… var ekki alveg dauð… það kallast zombie, *nafn*!… ZOMBIE þú breytist í heilalausa zombie ef þú heldur þessari drykkju þinni áframm… það byrjar á fikti og virðist ekki hafa nein áhrif í byrjun en svo fer það útí veiki og að lokum dauða… stórhættulegur andskoti (ef ég má svo að orðum mínum komast)ég er ekki úlfurinn í þessari sögu… ég er hirðmaður og þessir litlu breezerar þínur eru úlfarnir í kindslíki í þessari sögu… og þú frú mín góð ert að dansa með þeim kjöltudans! Ég hreinlega mótmæli slíkri óhefðarsiðum (þú veist hvað ég meina!!! ég nenni ekki að flétta í fkn orðabók til að finna flókin og rétt orð!! segjum að þetta sé rétt) og *nafn2* er slæmur félagsskapur hún er svona ljóta stóra úlfamamman sko! með tennur sem gætu rifið haus af lamadýri með því einu að koma nálagt því! og meik-up sem gæti gjörsamlega gert Bajkalvatnið geislavirkt!!! í alvöru! ertu búin að sjá hvernig hún horfir á mann! hún er hættuleg þessi kona… eins og eins og eitthvað tryllt villidýr með hundaveikina að bíða eftir að því að fá æðiskast og tryllast á manni með froðufellandi kjafti sem gætidrepið TRÉ með því að horfa á það í 40 km fjarðlægð!ég er að segja þér *nafn*… hún er vandræði! semsagt… Ekki undir neinum kringumstæðum drekka og í guðanabænum halltu þig eins fjarri *nafn2* og þú mögulega hefur tök á! (vandræði ég er að segja þér… tómt endalaus vesen!