iPod? eða MP3? Á iPod shuffle sem mér finnst snilldar apparat þó að það sé eins og flestir vita ekki eins og iPod Mini með skjá. Í dag fór vinkona mín eitthvað að spurja mig um MP3 spilarann minn og ég eitthvað? Ha? Meinaru iPodinn minn? Hún sagði þá: Það sem þú átt er ekki iPod - iPod shuffle er ekki iPod það er bara MP3 spilari. Ég náttúrulega ekki á því að blessaði iPodinn minn sé bara eins og hver annar MP3 spilari þannig að við fórum að rífast.
Langar bara að vita hvort þið teljið iPod shuffle (eins og hún segir) ekki iPod útaf það vantar skjáinn - eins og er á Mini - eða hvort það sé iPod eins og ég segi.
~bollasúpa