Ég verð eiginlega að vera sammála því að þetta sé rasismi, meiðyrði og heimska. Að sjálfsögðu er ekki hægt að dæma heila þjóð útfrá einum glæpasamtökum eins og litháensku mafíunni. Ég hef persónulega farið til Litháen og Póllands og verð að segja eins og er, það er miklu meiri velmegun í Litháen en nokkurn tíman í Póllandi. Oft er talað um að í þessum löndum sé t.a.m. ekki hægt að þverfóta fyrir vændiskonum og eiturlyfjum en eins og á Íslandi þá er einfaldlega hægt að sleppa því að fara í...