Mér finnst allt í lagi að ríkið eigi og reki útvarp og sjónvarpsstöðvar. Það sem mér finnst fáránlegt er hvernig gjaldið er innheimt. Það ætti bara að smella þessu inn í skattana. Það er örugglega aukinn kostnaður við núverandi innheimtuaðferðir, þar sem fólk er í vinnu við að banka uppá hjá þeim sem er ekki að greiða afnotagjöld og reyna að sjá eða heyra hvort sjónvarp sé í gangi innandyra. Maður hefur heyrt sögur af þessum “Spæjurum” sem leggjast á glugga og / eða villa á sér heimildir til...