Hér Fyrir Neðan er Spoiler fyrir þá sem ekki Hafa séð þannan þátt. Ef þú Vilt ekki Vita Hver var kosinn burt skalt þú ekki flétta niður!!


Jæja, Bara næstsíðasti þátturinn búinn. Og þessi var bara nokkuð góður. Í þættinum Héldu Þau Áfram að Röfla um Hann Clay og hvað hann gerði ekkert og væri Latur. Helen og Ted Voru að tala um hann og ræða hvað hann væri latur og Clay lá ekki langt frá og vissi alveg hvað var á seyði.

Þegar trépósturinn kom, var þar Myndabók Og spegill. Í myndabókinni voru myndir af þeim fyrir keppnina. Fólkinu Brá ekkert smá á útlitinu á sér. Það sagðist Varla Þekkja sig.

Þegar Þau voru að labba á ströndinni á leiðinni á Verðlauna keppnina Kom Jeff Probst Keyrandi á splúnku nýjum Chevy Trailblazer og sagði öllum að setjast inn. Svo Útskýrði hann að verðlaunin í keppninni væru Jeppinn, Dagur á Heilsuhæli, matur og vín og frí frá keppninni í 1 dag.

KEppnin var þannig að það átti að stafa 2 orða setningu með því að leita af rétum stöfum í sérstakri braut sem var búið að leggja. Þar voru fullt af stöfum á spjaldi en bara nokkrir réttir sem voru merktir. Öllum gekk vel að safna stöfunum Nema Jan, og undir lokinn voru allir komnir með stafina á staðinn þar sem átt að búa til setninguna. Þar náði Brian Orðinu og öskraði orðið út “Road Trip” En það sem hann vissi ekki að hann Stafaði það vitlaust “Raod Trip” Og Ted Heyrði hann öskra þetta út og kallaði á Jeff og Það var Ted Sem vann. Jeff Bauð honum að taka einn með sér og átti maður Von á því að Hann myndi taka Brian með en Nei hann Ákvað að Taka Helen með til þess að þakka henni fyrir gamlan greiða.

Þegar Þau koma á staðinn þá er þetta lítið bæli með sturtu, rúmi, Fullt af mat og víni og 2 nuddkonum. Hvorki Helen né ted Drekka áfengi en ákváðu samt að þar sem þetta væri sérstök stund þá myndu þau drekka í þetta eina skipti. Ted virtist eitthvað hafa drukkið of mikið og var orðin Hauga blind fullur og fóru þau svo bæði í sturtu og nudd og svo bara að sofa.

Þegar þau komu aftur þá lék Ted Jólasveinin og dreifði gjöfum til hinna. Allir fengu Vínflösku og svo tóku þau mat með sér líka.
Allir Voru svaka ánægðir nema að Clay var öfundsjúkur útí Hann Ted útaf Nýja Jeppanum.

Næst Var komið að Immunity Challenge. Þar Var keppnin þannig að þau byrjuðu neðst í 10 þrepa tröppum. Nema það að það vantaði hálfa tröppuna. Þau áttu að hlaupa og sækja allar tröppurnar eina í einu og klára tröppurnar. Í byrjun Háðu Brian Og Clay mikla baráttu en Það var Hins vegar Brian sem vann létt í lokinn. Og fékk Hann þar með Immunity.

Á Tribal Council Var það svo Loks HAnn Ted sem Var kosinn úr Chuay Jai. Hann fékk 4 atkvæði en Jan fékk 1. Þannig að í Lokahópnum eru Clay, Helen, Brian og Jan.

Næst er það bara Lokaþátturinn og Grunar mig að hann verði Mjög Spennandi og skemmtilegur.


Kveðja

PugMan