Ég er töluvert sannfærður um að geimverur( í þessari mynd), á jörðinni, séu ímyndun ein. Í öllum tali um græna geimkarla á jörðinni, hefur enginn minnst neitt á að verurnar væru með hjálma. Ok, ok virðist vera smáatriði. En ef við gerum ráð fyrir að efnasamsettning geimverufrumanna sé önnur en okkar t.d. að megin uppistaðan væri t.d. silikon, sem er þó mjög ólíklegt (hentugasta efnið fyrir líf er C, líf á jörðinni grundvallast á kolefnissamböndum), gæti andrúmsloftið virkað sem “púra” eitur...