Í vikunni dæmdi héraðsdómu Reykjavíkur mann í 3 ára fangelsi fyrir eina hrikalegustu líkamsárás og nauðgun sem ég man eftir að hafa heyrt um.

Hér kemur grein úr fréttablaðinu sem lýsir atburðinum:
“Maðurinn réðist að stúlkunni þegar maður sem hafði verið með þeim í
sumarbústaðnum hélt á brott. Maðurinn barði stúlkuna með hnefum og skóm
auk þess sem hann sparkaði ítrekað í hana. Þá klæddi hann hana úr fötunum og hótaði henni því að hann myndi mölbrjóta á henni báða fæturna ef hún reyndi að flýja. Þá nauðgaði hann stúlkunni ítrekað,hvoru tveggja í leggöng og endaþarm.

Meðan á nauguninni stóð tróð hann glasahaldara úr tré upp í leggöng
stúlkunnar. Að auki lét hann stúlkuna sleikja lim sinn og borða eigin saur. í hvert skipti sem stúlkan reyndi að mótmæla nauðgunum mannsins barði hann hana og hélt henni fastri. Þá hótaði hann stúlkunni að hann myndi fletta af henni húðinni með ostaskera og á henni voru för sem gáfu til kynna að hann hefði reynt slíkt.

Þegar stúlkan sagðist þurfa að fara í sturtu þar sem hún væri öll skítug með saur í andæitinu henti maðurinn henni inn í brennandi heita
Sturtun og barði hana á meðan.

Hjúkrunarfræðingur sem tók á móti fórnarlambinu á neyðarmóttöku
greindi frá því fyrir rétti að áverkar á stúlkunni hafi verið það miklir að þetta hafi verið eitt það hrikalegasta tilvik sem hún hafði séð á neyðarmóttöku.

Ekki hafi verið unnt að taka utan um hana þar sem hún hafi allstaðar
fundið til, andlitið verið bólgið og augun sokkin. Þá getur hún þess að ástæða hafi verið talin til að hafa vörð yfir stúlkunni vegna hættu sem kynni að stafa af árásarmanninum”

Þrjú ár? Eru dómarar að grínast eða finnst þeim bara þetta ekkert vera neitt alvarlegt? Hér er búið að skemma mannslíf svo ekki verður úr bætt og refsingin er þriggja ára fangelsisdómur og einhver smá peningagreiðsla í skaðabætur. Hér er um verulegan misbrest í dómskerfinu að ræða.

Svona hlutir gera mann svo reiðan að mann langar til að springa! Maður á bara ekki til orð yfir því hversu algjörlega er horft framhjá öllu réttlæti í þessum dóm! Þessi maður hlýtur enga teljandi refsingu fyrir glæpinn og á vafalaust eftir að vera kominn aftur á götuna eftir 18 mánuði, tilbúinn til að gera þetta aftur!

Og hugsið ykkur hvað hann er fær um að fremja viðbjóðslega glæpi…