enn eruð þið að blanda tilfinningum í þetta mál.. ég benti einfaldlega á hver hefðin er, til þess að skýra hvers vegna þessir menn voru felldir. Sömu örlög biðu til dæmis mujahideen stríðsmanna sem börðust með múslimum í borgarastríðinu í bosníu. Einnig eru fjölmargar sveitir, til dæmis al-qaeda, og menn Gulbuddins Hekmatyar, sem berjast með talibönum, en eru engan veginn talibanar og lúta einungis að takmörkuðu leyti stjórn þeirra. Rétt er að gera greinarmun á þessum sveitum.