Break the Cycle var einn fyrsti diskurinn sem ég keypti. Ég hlustaði rosalega mikið á hann og var að fíla hann í tætlur. Svo fór maður að hlusta á fullt af tónlist, og gleymdi þessum eiginlega. Ég keypti mér svo nýja diskinn um daginn og fannst hann frekar slappur (hlustaði kannski bara ekki nógu vel á hann). Þá hélt ég að maður væri bara ekkert að fíla þá lengur. En svo setti ég Break the Cycle í spilarann um daginn, og sama hvað aðrir segja, þá finnst mér hann mikil snilld.