Nýjir litir á Vefsíðugerð Já fyrir þá sem að eru búnir að taka eftir nýju könnuninni þá er kannski kominn tími til á smá breytingar hér á Vefsíðugerð, þá er ég ekki að tala um einhverjar stórvægilega heldur bara nýla liti hér. Þannig að ÉG ætlaði að biðja þig ef að þú hefur einhverja skoðun á því hvaða liti þú myndir vilja sjá hér á Þessu áhugamáli. Persónulega finnst mér allt í lagi að það séu tvö áhugamál með eins liti fyrst að þau eru orðinn svona svakalega mörg, þannig séð getur þú líka bent á eitthvað áhugamál hér á huga.is sem að þér finnst litirnir vera flottir þar.

Svo eftir að þið eruð búnir að tjá ykkur þá útbý ég svona litlar myndir og svo getið þið kosið um bestu útfærsluna, “vinningslitirnir” fá síðan þann heiður að prýða þetta áhugamál.

Þetta er samfélagið ykkar og þið eigið að geta tjá ykkur líka um hvernig það á að líta út enda gengur Hugi.si algerlega út á hvað notendurnir eru virkir.

Persónulega finnst mér Háhradi vera með flottustu litasamsetninguna :)

Virðingarfyllst
arnorg