Ég ætlaði bara aðeins að spjalla um þessar fréttir sem maður hefur verið að sjá undanfarið, um að Landspítalinn þurfi að skera niður um allt að 1-2 milljarða.

Er ég nokkuð einn um að finnast þetta eitthvað svolítið undarlegt? Mér finnst eins og það sé nánast litið á þetta sem misstök hjá spítalanum, en ég meina vaaaá… menn eru ekki komnir 700 milljónum fram úr fjárlögunum í byrjun september vegna þess að það er verið að borga of háa yfirvinnu eða hvað?!?

Þetta þýðir ekkert annað en það að það sem er reiknað á spítalana er hundruðum mílljóna of lítið! Nú, ef að það eru slæmir stjórnunarhættir í gangi þá er um að gera að koma því í réttar skorður, en það skýrir ekki þúsund milljóna mismun!

Ég veit ekki um ykkur, en ég vill a.m.k ekki HEYRA MINNST á mína 20 milljarða króna skattalækkun meðan málin standa svona. Ef ríkið hefur ekki einusinni efni á að halda heilbrigðiskerfinu á réttu róli þá hefur það andskotann ekki efni á að veita mér tugmilljarða skattalækkun fjandinn hafi það. Hvernig væri að henda eins og 2 milljörðum þangað fyrst að ríkið á svona mikið af þeim…

Um að gera að hagræða, en hlutirnir eiga að vera á sem ódýrastan og BESTAN hátt, ekki bara á sem ódýrastan.