Heh… var einu sinni þess heiðurs aðnjótandi að fá að fylgjast með æfingu þyrluflugmanna Bandaríkjahers úti á Reykjanesi hér í den, þar sem þyrluflugmenn og áhafnir léku listir sínar, með öllu tilheyrandi sigi, snertilendingum og yndislegheitum. Mamma og Pabbi þekktu nefnilega einn flugmannanna (og fjölskyldu hans) og því fengum við þetta boð um að koma og fylgjast með (auk fjölskyldu þessi tiltekna flugmanns), og auðvitað þáðum við það. :D Og auðvitað var myndavélin meðferðis, þótt maður...