Mér finnst alltof vafasamt að benda 15 og 16 ára krökkum á að drekka til að brjóta ísinn… sérstaklega þar sem yngri aðilinn er enn í grunnskóla! En hvað þig varðar, Forget, þarftu að ná að hitta á hana, hvort sem það er í partýi eða útá götu og tala við hana, spyrja hana um símanúmer eða MSN-fang. Svo er auðvitað að bjóða henni að hitta þig oftar, hvort sem það er í bíó, sundi, göngutúr eða á kaffihúsi.