Íslenska Wikipedian var að rjúfa 12 þúsund greina múrinn núna um daginn. Af því tilefni ætla ég að minna á hana hér, því þótt vöxtur hennar hafi að undanförnu verið býsna tilkomumikill og glæsilegur má alltaf gera betur og það er nóg sem þarf að bæta við.

Ég vænti þess að hér á þessu áhugamáli leynist áhugafólk um vísindi en um þau efni vantar heilmikið á íslensku Wikipediu, bæði greinarnar um almenn efni, eins og heilu vísindagreinarnar, og eins greinar um afmarkaðri efni, eins og tilteknar kenningar,, lögmál, uppgötvanir, tiltekna vísindamenn og þar fram eftir götunum. Þetta á við um allar helstu greinar vísindanna: eðlisfræði, efnafræði, líffræði, jarðfræði, stjörnufræði, stærðfræði, sálfræði, hagfræði, mannfræði, málvísindi, félagsfræði, stjórnmálafræði o.s.frv.; og einnig um sérhæfðari greinar: erfðafræði, jarðeðlisfræði, frumulíffræði, dýrafræði, heimsfræði, taugavísindi, tölfræði, eiturefnafræði o.s.frv.

Ólíkt Huga, sem afþakkar allt c/p efni, er í góðu lagi að taka efni frá öðrum Wikipedium, t.d. ensku Wikipediu, og þýða yfir á íslensku. Enska Wikipedian er þegar orðin stærsta alfræðirit sögunnar (í fjölda greina) og margar greinarnar eru ítarlegar og góðar. Þessar greinar má t.d. nota sem grunn fyrir íslenskar greinar, ef maður nennir ekki að þýða þær frá upphafi til enda eða bara veit ekki hvar maður á að byrja.

Að skrifa í alfræðirit getur verið skemmtileg reynsla. Það þarf að sjálfsögðu að gæta hlutleysis og vanda til verks en það er nú þegar fjöldi annarra notenda sem er reiðubúinn að veita hjálp. Það sakar ekki að renna fljótt yfir kynningarsíðuna og handbókina áður en maður byrjar, en annars má alltaf spyrja spurninga í pottinum.

Það er vert að geta þess að það er ekki nauðsynlegt að vera skráður notandi til að skrifa eða breyta grein, en það hefur þó sína kosti, auðveldar manni t.d. að eiga samskipti við aðra auk þess sem maður getur sett upp notandasíðu þar sem m.a. er hægt að halda utan um þau verkefni sem maður hefur unnið að eða ætlar að vinna í seinna.

Íslenska Wikipedian er að orðið glæsilegt ókeypis alfræðirit á netinu. Það getur orðið miklu glæsilegra og þú getur hjálpað til.
___________________________________