Þá bendi ég þér eindregið á að finna umfjallanir um gosið í annálum, þar sem þú færð frásagnir þeirra sem voru á staðnum. Um gosið sjálft, eiginleika þess og gerð, bendi ég þér á bók Ara Trausta Guðmundssonar, Íslenskar eldstöðvar frá 2001, þar fjallar kafli 12 (bls. 196) um Vestmannaeyjar, kerfið sem er tengt þeim og eins um Heimaeyjargosið 1973 og einnig Surtseyjargosið 1963-67. Í stuttri samantekt: Öldin okkar leitaðu að árinu 1973. Íslenskar eldstöðvar eftir Ara Trausta Guðmundsson, kafli 12.