Photec kemur með nokkra punkta hingað inn, sem leggjast vitaskuld misvel í menn. Hins vegar hef ég núna skoðað atvikið nokkrum sinnum, frá mismunandi sjónarhornum og persónulega er ég á þeirri skoðun að þetta hafi ekki verið algjört óviljaverk hjá Hunt, þó ég sé ekki á þeirri skoðun að hann hafi ætlað sér að stórslasa Cech. Þegar ég fór yfir atvikið, séð frá endalínunni, komst ég að þeirri niðurstöðu að Hunt hafði alla möguleika til að afstýra árekstri við Cech, en í staðinn tekur hann...