Ókei málið er að ég er hrifinn af stelpu, smá skot, ekkert meira en það. Held að hún sé hrifin af mér líka. Það er allt í góðu en málið er að það er að um síðasta sumar var ég að dúlla mér með bestu vinkonu þessarar stelpu, og ekkert lítið heldur alveg frekar mikið. Þessi stelpa sem ég var að dúlla mér með kom einn daginn með einhverja svaka játningu um að hún elskaði mig, eða væri mjög hrifin af mér. Svo sagði hún mér að vera bara hreinskilinn og ég var hreinskilinn og sagði að ég væri ekki hrifinn af henni. Hreinskilni borgar sig.

Það var samt aldrei neitt vandræðalegt á milli okkar því við einfaldlega ákváðum að hafa það ekki þannig. Vorum og erum ennþá ágætir vinir. Það er bara svo pirrandi hvað þær eru bestu vinkonur, ekki bara einhverjar venjulegar vinkonur heldur gjörsamlega bestu vinkonur.

Svo er líka málið að það er önnur stelpa sem er hrifin af mér, og reynir við mig alveg í hvert sinn sem hún kemur í bæinn, sem er kannski svona einu sinni á mánuði. Ég var hrifinn af henni fyrir löngu og við vorum að dúlla okkur eitthvað saman.

En þessi stelpa sem ég er að dúlla mér með núna er falleg, feimin stelpa, gella, samt alveg óreynd í samböndum (ég eiginlega líka en samt aðeins meira hehe) og það er bara svo mikið turn on eitthvað. Ekki bara sexually..samt líka.

Þetta hljómar ekkert erfitt en það er samt ógeðslega erfitt að þær séu bestu vinkonur. Bestu bestu vinkonur.

Svo er líka vandamál, ég hitti þessa stelpu alltof sjaldan. Kynntist henni á balli þar sem ég dansaði alveg geðveikt lengi við hana og talaði mikið við hana og fann alveg að það var eitthvað á milli okkar og sá alveg að hún sýndi áhuga. En ég hitti hana allt alltof sjaldan, við erum ekki í sama skóla og hittumst eiginlega aldrei. Ég er ekki með símanúmerið hennar og ekki msnið hennar (samt þekkjumst við alveg ágætlega).

Finnst asnalegt að reyna að redda msninu hennar til þess að tala við hana á msn, þar sem við búum innan við kílómeter frá hvoru öðru en það væri soldið fáránlegt að banka bara uppá hjá henni, erum ekki orðin það náin.

Mig langar bara til að kynnast henni betur og ég held að hún vilji það alveg örugglega líka (hún sýnir það allavega) en ég veit bara ekkert hvernig. Get alveg talað við hana og allt það, er ekkert það ofurfeiminn eða eitthvað þannig. Veit bara ekki hvar og hvenær.

Ég er fæddur ’90 og hún ’91, ef það skiptir einhverju máli.

Þetta er kannski ekkert neitt mjög stórt vandamál en það væri samt fínt að fá hjálp.


Bætt við 9. nóvember 2006 - 23:00
Og þið sem þekkið mig, please stay out of this :P