Í fyrsta lagi sæmó grein!! :) Í öðru lagi ekki margar stafsetningarvillur (húrra). Í þriðja lagi þá er ég ekki sammála þér. Mér fannst það frábært að Austuríki hafi komið með frumlegt lag í keppnina. Það er svo mörg lög með sama “Eurovision fíling” eins og ég kalla það og það var bara mjög fyndið að sjá þennan “trúð” á sviðinu. Málið með t.A.t.U. er það að þær voru búnir að segja svo margt á blaðamannafundum o.fl. að það voru allir búnir að gera sér vonir um að þetta yrði eitthvað sérstakt...
Mjög fín grein hjá þér. En ég skil ekki hvað þér finnst spes við Jóhönnu Guðrúni. OK hún syngur vel, en framkoman og stjörnustælarnir (maður gæti ælt). Af hverju reynir hún ekki að semja lögin sín sjálf í samvinnu við einhvern í staðinn fyrir að fá lög sem er búið að breyta yfir í íslensku (allaveganna á fyrstu plötunni)! “Vertu hjá mér, vinur minn….” Svo væmið!!! Get a style Jóhanna (reyndu að vera þú sjálf ef þú getur það)!! Sorry ef þú ert “fan” :)
Fáranlegt!!! Af hverju máttu ekki vera í þeim fötum sem þú vilt og vera máluð! Er ekki frelsi í þessu landi??? :) Í hvaða fávita skóla ertu? Ég gæti ekki verið í skólanum þínum! :) <br><br>Andrea!!!!
Sverrsi. Hættu að þykjast vera einhver sem þú ert ekki! Það er ekkert sem heitir “gott” í heilanum í þér, allavega ekki eins og þú lætur. Þó að það séu stafsetningarvillur í greininni, reyndu þá að finna eitthvað gott við hana. Reyndu að draga fram eitthvað gott…
Takk æðislega fyrir álit þitt cooly!!! :O) Ég er algjörlega sammála þér. Ég og vinkona mín skrifuðum þessa grein í haust og létum á heimasíðurnar okkar þó að nærri enginn trúir því og segir að þetta sé stolið. Bestu kveðjur, Andrea
Sorry en ég verð bara að segja þetta. Af hverju segirðu að ég hafi verið að stela þessu af síðunni hennar Önnu Heiðu. Ef hún er eitthvað alveg eins eða eitthvað sorry en ég tók greinina EKKI af síðunni hennar Önnu Heiðu. Mér finnst voðalega leiðinlegt þegar einhver segir að eitthvað sé stolið þegar það er ekki. Lestu aðeins ofar, þá sérðu hvaðan ég tók þessa grein. Nei, heyrðu ég skal bara segja þér það. Ég tók þetta af MINNI heimasíðu um Harry Potter. Takk fyrir samt að lesa greinina!!! :O)
Ég held að þættirnir séu ekki til sölu á Íslandi, allavega ekki enn. Ég horfi alltaf á þessa þætti og mér finnst þeir alveg frábærir. Þú gætir leitað á netinu því það er alltaf allt til á netinu (eða næstum allt) :O) Vonandi finnur þú þættina ef þú ert ekki þegar búinn að því. Bestu kveðjur, Andrea <br><br>Andrea Guðmundsdótti
Jú það getur vel verið að þetta sé líkt því maður fær bara alltaf sömu upplýsingarnar á netinu en ég og vinkona mín gerðum þennan texta á heimasíðurnar okkar úr upplýsingum sem við fundum. Þetta er copy/paste það er rétt hjá þér en ég copy/paste þetta af minni heimasíðu. Svo vissi ég ekki um þessa grein sem þú varst að tala um. En ég afsaka þig alveg :O) Bestu kveðjur, Andrea
Ertu að meina stóru stafina? Ég nota þá oft svo fólk taki eftir hvað ég er að segja, því fólk er alltaf að ákveða að allt sem það heldur sé rétt (I hate that, eins og þessi sverrsi) :O) Takk fyrir ábendinguna!! Bestu kveðjur, Andrea.
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana.
Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..