Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

Tungumálaskóli Í Frakklandi (4 álit)

í Skóli fyrir 15 árum, 2 mánuðum
Hæ hæ. Mig langar rosalega að fara í tungumálaskóla til Frakklands í sumar í svona 4-6 vikur, og þá sérstaklega á Frönsku Riveríuna (Cannes, Nice). Er einhver sem hefur gert þetta, eða veit hvernig maður gerir þetta? Það er engin umboðsskrifstofa fyrir svona á Íslandi er það? Verður maður ekki að gera þetta á eigin vegum? Endilega komið með svör ef þið vitið eitthvað tengt þessu :) Merci beaucoup ;)

Aldursmunur!!! (34 álit)

í Rómantík fyrir 17 árum, 6 mánuðum
Ég var að kynnast gaur sem ég hef geggjað mikinn áhuga á. Hann er bara yndislegri en allt, en málið er að hann er 8 árum eldri! Mér finnst það frekar mikið en honum virðist vera alveg sama. Ég veit ekki alveg hvað ég á að gera, hafið þið einhverja reynslu á svona? Engin skítköst takk! :)

Sumarbústaðir til leigu? (4 álit)

í Ferðalög fyrir 17 árum, 7 mánuðum
Ég er að leita mér að sumarbústað sem er á Suðurlandi til leigu í október (helst ekkert svakalega langt frá Reykjavík). Vitið þið um einhvern sem er ekki í gegnum stéttarfélag?

AÐ GERA MIG BRJÁLAÐA! (8 álit)

í Rómantík fyrir 17 árum, 7 mánuðum
Jæja nú er svona einn og hálfur mánuður síðan ég og kærastinn minn hættum saman og ég er alveg komin yfir hann. Eina vandamálið sem er núna er það að HANN ER AÐ GERA MIG BRJÁLAÐA! Er með geðveika stæla, alltaf að spurja hvort ég sé að hitta einhvern og er að reyna að eyðileggja vináttu milli míns og vinar míns sem hann þekkir líka. Hafið þið lent í þessu? Ég veit einfaldlega ekki hvað hann er að pæla og veit ekkert hvernig ég á að taka þessu. Ég vona svo innlega að þið getið gefið mér...

Stærðfræði 103!! (28 álit)

í Skóli fyrir 17 árum, 8 mánuðum
Ég er í Stærðfræði 103 og skil bara ekki neitt í bókinni. Get ekki lært heima það sem ég á að gera og kennarinn flækir bara allt og ruglar mann bara. Ég fékk 8 í stærðfræði úr samræmdu og 9.5 í lokaprófi og hef alltaf verið góð í stærðfræði en núna er ekkert að ganga upp… Er einhver hérna sem er í sömu sporum? Er alveg komin með hnúta í magann.. próf eftir tvær vikur og ég skil þetta ekki! Engin skítköst;)

Að jafna sig! (8 álit)

í Rómantík fyrir 17 árum, 8 mánuðum
Ég veit að flestir sem skrifa inn á þennan þráð eru að upplifa það sama þannig að þið ættuð að skilja mig. En ég hætti með kærastanum mínum fyrir tveimur vikum. Það var allt búið að vera fullkomið en svo kom þetta bara allt í einu. Hann vildi taka pásu og sagðist ekki vera tilbúinn í samband. Þetta kom eins og þruma úr heiðskíru lofti. Fyrst hélt ég að ég myndi ekki lifa annan dag! Sérstaklega þar sem bestu vinir mínir voru í útlöndum og ég var að fara í aðgerð. Svo jafnaði ég mig fljótt og...

Herjólfur? (4 álit)

í Djammið fyrir 17 árum, 9 mánuðum
Ég á pantaðan miða í Herjólf á miðvikudeginum 2. ágúst í Eyjar en er svo að fara til útlanda og kemst ekki á Þjóðhátíð (því miður) en vitiði hvort að ég geti selt miðann minn beint því að það er kennitalan mín á honum. Allaveganna er uppselt í Herjólf og eflaust einhverjir sem vilja fá hann!!

Kokteilar og bollur! (3 álit)

í Djammið fyrir 17 árum, 11 mánuðum
Ég er að fara að halda uppá afmælið mitt næstu helgi og langaði að vita hvort að þið vissuð um einhverja geðveika kokteila eða bollur! :) Endilega látið þá “uppskriftirnar” hér… Takk takk :*

Flott brjóst!!! (9 álit)

í Tíska & útlit fyrir 20 árum, 7 mánuðum
Takk fyrir að vekja athygli á þessu ;) en ég ætlaði bara að spurja ykkur hvort þið vissuð hvort svona GERVILITUR sem maður kaupir út í búð (til að lita á sér hárið) skemmir hárið eða hvort maður fái ekki sinn raunverulega “hárlit” aftur?!?! Vitið þið eikkað um það?? *LOVE*<br><br>Andrea!!!!

Hvernig? (6 álit)

í Rómantík fyrir 20 árum, 10 mánuðum
Hvernig getur maður séð hvort einhver sem maður er hrifin af sé hrifinn af manni? Plz hjálpið mér…. Bestu kveðjur,<br><br>Andrea!!!!
  • Síður:
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok