Þetta er kannski ástæðan afhverju það er enginn inn á þessu lengur, úrslit átti að vera komin 1.apríl og ok, allt í lagi að seinka þessu smá út af seinustu myndinni en en komm onn, 7.apríl og ekkert…
Skil ekki hvernig fólk á þessum aldri getur gert svona lélegt í að gera stuttmynd xd..Haha, ætla svosem ekkert að vera með nein leiðindi..Bara hreinskilin Bætt við 6. apríl 2009 - 15:13 (Var að horfa á mynd meðan ég skrifaði þetta og fór ekki yfir xd)
Þetta getur nú varla verið gabb finnst að það var hægt að setja myndirnar inn 1.mars-31.mars…. Þannig sé nú varla hvernig þetta getur verið “apríl” gabb…En ef svo er, þá verð ég ansi pirraðu
Ástæðan fyrir því að endirinn var ekki svarhvítur er auðvitað augljós, liturinn er notað sem tákn á raunveruleikan í stað ímyndunar og vona (sem sagt svarthvíta) … Svo um leið og allt fór í lit, áttaði drengurinn sig á stöðunni og hætti að vona og ímynda sér að staran snérist öll um hann. Vonandi fattaru hvað ég á við xd haha
Æjj verða þessir leikir ekki bara verri og verri (fyrir utan San Andreas) en upp á síðkastið hafa komið þessir Stories leikir (Liberty City stories o.sfrv) og þeir líta svo illa út að ég vil þá ekki einus inni… Nú verða þeir að koma með einhvað nýtt og frumlegt!
Ég á NES í toppástandi, á örugglega 20 leiki (Supermario I og III, Duckhunt, Robocop, Felix the Cat, Teenage Mutant Ninja Turtles I o.s.frv). Tvær fjarstýringar og rauða byssu fyrir Duckhunt. En ekki til sölu, haha
Það er ekkert nauðsynlegt að breyta sögunni, bara taka meiri tíma í atriðum og bæta fleiri atriðum inn í sem er í söguþræðinum..Æjj erfitt að útskýra… Horfðu á teiknimyndina, það er sleppt helling úr henni og bætt við samt er hún alveg 20 mín og hún var nokkurn vegin trú sögunni.
…Svo þarf ekkert endilega að sjást einu sinni í hauskúpuna, í leikritinu amk þá eltir hann hana um allt svæðið og eltir hana heim og fullt af stöffi, það gæti alveg gert þetta óhugnalegt.
Ég hef séð leikrit um Djáknan á Myrká, og það var alveg 30 mín. (lítill partur af langri sýningu)og það var alls ekki langdegið. Ég veit að það er náttúrulega leikhús en það væri alveg hægt að bæta twist í málið og bæta auka atriðum við til að redda málunum.
Já en ef það hefði verið eitthvað mikið ævintýri þá hefðu hún verið svo barnaleg hugsanlega. Þó það yrði skemmtilegt að sjá meiri kalla eins og augnlausa kallinn þá hefði það mjög líklega skemmt myndina að hafa mikið ævintýri
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana.
Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..