OK þið haldið að þetta sé blóðtaka hjá bönkunum, prófið að fara með smáaura í bankann til að skipta. Segjum að þetta sé sæmilegt magn, sem þú hafðir bara ekki tíma til að telja sjálfur áður en rokið var út. Þú hefðir betur gert það. Þótt bankarnir séu með afskaplega sniðuga vél, sem nota bene er notuð af þeim til að telja upphæðina áður en hún er greidd út, þá er sko greinilega ekki ódýrt að reka hana. Það kostar þig nefnilega 1500 krónur fyrir ómakið að hella peningunum í hana og ýta á...