Nýlega komu trailerar tveir frá vini okkar George Lucas.
Trailerarnir eru fyrir þá sem ekki vita úr nýju myndinni Star
Wars Attack Of The Clones sem kemur 2002. Fyrri hét
“breathing” og voru myndskot úr myndinni meðan harður
andardráttur Darth Vaders var í bakgrunni . Sá trailer fannst
mér einnkar góður og beið spenntur eftir næsta sem kom
stutt seinna. Hann var mjög fínn ,og var nú ekkert sem kom
mér á óvart í honum. Það voru sýnd ástaratriði frá Anakin
Skywalker sem er orðinn fjallmyndarlegur og hinni fögru
Amidölu drottningu. Einnig má sjá Boba Fett hinn grimma
bounty hunter sem kemur dánokkuð við sögu í þessari mynd.


Myndin sem fjallar um klóne stríðin. Þar sem er sagt frá
baráttu hinnu illu clona stjórnað af Palpatine og Jediana og
fleiri. Þar má sjá faðir hennar Princess Leiu . Myndin frjallar
líka um baráttu Anakins Skywalkers við að standast freistingar
illu hliðarinnar. Og þegar hann verður ástfanginn af Amidölu
en honum er bannað að eiga konu það er nefnilega bannað
samkvæmt reglu jediana. Hann verður æfareiður og seigist
ætla að verða voldugastri jedi heimsins. Obi wan ræður ekkert
við hann og fattar ekki mistök sín fyrir en á síðustu mínútu.
Það sem kom mér mest á óvart var að klónin litu út fyrir að
vera börn.


Trailerarnir eru mjög góðir og er hægt að nálgast þá á
Starwars.com. Myndin verður sennilega ekki bönnuð seigir
George Lucas og verður hún frumsýnd á Íslandi í sumar. Það
er hægt að fræðast allt um myndina og bækur gefnar út í
sambandi við star wars á síðunni. Trailerarnir eru um svona
30 sekúndur en “breating” er svona 10. Ég mæli með þeim
,og fyrir þá sem er alvöru aðdáendur þá skipa ég þeim að
downloada honum í góðum gæðum .


Link