Þeir sem hafa séð hina myndina gátu varla búist við einhverju tímamótaverki af þessari. En mér fannst hún rétt skítsæmileg afþreying, og tölvugerðu bardagarnir héldu alveg myndinni uppi. Ég veit að ég hefði annars slökkt á henni, því ekki var persónusköpun fyrir að fara þarna. En það var eitt atriði sem alveg fór með hana niður í ræsið, en það var þarna ‘ljósflóðið’ nður holræsið. Það var verulega hallærisleg redding fyrir hann Blade…