Jæja, þá kom að því að Matta mín sem ég hef átt síðan hún var tveggja mánaða yrði 10 ára, fædd 13. maí 1993. Það versta við þessi tímamót er það að þetta minnir mig á hvað ég er orðin gömul :-/

Matthildur Mjása eins og hún heitir fullu nafni er svart/hvít læða, alger drottning í sínu hverfi þrátt fyrir aukakílóin sín þrjú. Hún hefur bara verið á megrunarfæði síðustu ár en það virðist ekkert virka þannig að hún er einfaldlega feit.

Í kvöld mun hún snæða rækjur og rjóma í tilefni dagsins og fá extra mikið af klóri og knúsi. Blóm og gjafir eru afþakkaðar :)

IceCat og Matta afmælisköttu