Æ, greyin mín. Þetta var leiðinlegt að heyra, ég vona að henni líði betur núna og að þið sofið öll vel í nótt. En getur þú eldað fisk þegar hún er nálægt? Það er ein stelpa í leikskólanum mínum, sem situr á mínu borði, með ofnæmi fyrir fiski. Í hvert sinn sem það er fiskur í matinn þá fær hún væg ofnæmiseinkenni. Augun í henni bólgna og hálsinn herpist lítillega, bara af gufunum og lyktinni af fiskinum. En ég má til með að segja ykkur yndislega sögu af þessari stelpu. Það var þannig að á...