Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

Re: EHE HJÁLP ? (;

í Djammið fyrir 17 árum, 1 mánuði
Nú? Hvernig heldur þú að þetta sé, maður meigi keyra eftir einn bjór en ekki tvo? (ATH -bara dæmi) Það er alltaf verið að hamra á því allstaðar að það meigi ekki keyra ef maður hefur neytt áfengis. Sama hversu lítið það er. Auðvitað getur maður tekið einn sopa og keyrt en í stað þess að vera að setja eitthvað viðmið hvað maður getur drukkið er lang einfaldast að banna áfengi og keyrslu bara allveg. Því áfengi er auðvitað missterkt og svona. Allavegana stendur allt um þetta hérna:...

Re: Verta bók sem þið hafið lesið.

í Bækur fyrir 17 árum, 1 mánuði
Versta bók sem ég hef lesið… Man ekki nafnið á henni en þetta var samansafn af einhverjum smásögum. Ég las nokkrar…örugglega svona 4 eða 5 og gafst upp. Sögurnar byrjuðu kanski ágætlega en voru bara allt of súrar fyrir mig. Stundum fannst mér enginn endi vera á þeim..enduðu bara allt í einu, eða eitthvað tilgangslaust gerðist. Skildi bara ekki tilganginn með þessum sögum..voru eitthvað voða skrýtnar. Ég gefst voða sjaldan eða aldrei á bókum (er þrjósk á þennan máta..vil helst ná að klára:P)...

Re: Verta bók sem þið hafið lesið.

í Bækur fyrir 17 árum, 1 mánuði
Laxness er góður. Allavegana sumar bækurnar eftir hann. Var að lesa Sjálfstætt fólk í íslensku áfanganum mínum núna og fannst hún mjög góð :)

Re: Ensk bók sem er góð og ekki löng?

í Bækur fyrir 17 árum, 1 mánuði
Jájá..fullt gerist..

Re: Samband

í Rómantík fyrir 17 árum, 1 mánuði
Vön að vera ein er ekki góð ástæða… Ekki hafa áhyggjur af því að þetta sé þér að kenna. Það er það alls ekki. Þú þurftir tíma til að læra og allir verða að fá smá tíma sjálfir í sambandi. Því miður virðist sem hún sé bara ekki lengur hrifin af þér, ef þú elskar hana meira en allt, eins og þú segir láttu hana þá í friði og leyfðu henni að vera einni. Það eru meiri líkur á því að hún hafi aftur samband við þig ef þú leyfir henni að vera aðeins í friði. Hún verður æstari í að losna við þig ef...

Re: Barneignir og aldur?

í Rómantík fyrir 17 árum, 1 mánuði
Hehe, þetta er móðurtilfinningin (æ, man ekki hvað þetta heitir) sem flestar, ef ekki allar stelpur/konur. Hef fengið svona..en svo hugsa ég skynsamt og spyr sjálfan mig: ,,er ég tilbúin að eignast börn?“ Langa mig ekki til að mennta mig fyrst? Ferðast?” Ofl. Því þegar þú eignast barn ertu allveg skuldbundinn og er ekki gaman að skemmta sér meðan maður er ugnur án skuldbindingar? :) Vertu skynsöm og eignastu barn þegar þú finnur að þú ert virkilega tilbúin að eignast barn og getur séð fyrir...

Re: þras um barneignir..

í Rómantík fyrir 17 árum, 1 mánuði
Alls ekki eignast barn ef þú ert ekki tilbúin til þess. Gerðu fyrst allt sem þú vilt gera í lífinu þangað til þú eignast barn, því þegar þú ert búin að eiga það, þá skuldbinduru þig í að minnsta kosti 18 ár. Ef hann elskar þig nógu mikið þá hlítur hann að geta beðið.. Ástæðan fyrir því að hann fór frá fyrverandi kærustunni sinni getur ekki bara verið að hún hafi ekki verið tilbúin að eignast börn, það hljóta að hafa verið fleiri ástæður :) Gangi þér vel að taka ákvörðun

Re: Hvað finnst þér?

í Rómantík fyrir 17 árum, 1 mánuði
Af hverju ættirðu að segja einhverri manneskju bara sísvona að þú sért “ástfangin/nn” af henni? Hverju ætti það að skila? Væriru að búast við því að hún myndi bara kyssa þig á kynnina, taka í höndina á þér og svo leiðist þið út í sólarlagið? Það er í besta falli til þess að skapa vandræðalega þögn, ef það er ekki bara krípí. Sammála. Finnst líka mikið betra ef það er farið hægt út í svona. Ef einhver segir við mig að hann sé hrifin af mér..þá bara..veit ég ekki hvað ég á að gera :P Mikið...

Re: EHE HJÁLP ? (;

í Djammið fyrir 17 árum, 1 mánuði
Það er samt í reglunum að það megi ekki drekka neitt áður en maður keyrir. Það er samt ekki hægt að taka neina refsingu út á það ef áfengismagnið er fyrir neðan mörkin. Lang einfaldast að keyra bara ekkert þegar maður hefur bragðað áfengi. Þá er maður ekki að taka sénsin á þessu og þar af leiðandi ekki að stofna öðrum í hættu :)

Re: Könunin -Besta íslenska myndin

í Leikhús fyrir 17 árum, 1 mánuði
Já, sammála með Englar Alheimsins en mér fannst Djöflaeyjan ekkert spes þegar ég sá hana :P

Re: Hvor velur Zac Efron

í Fræga fólkið fyrir 17 árum, 1 mánuði
Var hann einu sinni með þessar Nicky? Óvenjulegt að svona ótrúlega sætur og frægur strákur sé með svona þybbni stelpu… Bætt við 6. maí 2008 - 18:51 þybbnari

Re: Jessica Alba og Anorexía ;O

í Fræga fólkið fyrir 17 árum, 1 mánuði
Æ, greyið stelpan..

Re: Nýr Admin ;)

í Tíska & útlit fyrir 17 árum, 1 mánuði
Til hamingju :) Heyrðu, þar sem þú ert nú orðin stjórnandi ætla ég að koma með eitt comment sem mætti laga. Það mætti breyta þarna: ,,ég ætla.." og koma með einhverja aðra spurningu þarna þar sem þessi er orðin úrelt. Bara…ætlar þú að versla mikið af fötum í sumar eða eitthvað :)

Re: Hvað Er Í Töskunni ;D

í Tíska & útlit fyrir 17 árum, 1 mánuði
Vá hvað margir hérna eru með mikið í veskjunum sínum :O En ef þú ert bara að fara út í bíó, leikhús eða út að borða..tekurðu þá raksápu með þér? O_0 Allavegana, það sem ég hef oftast í veskinu mínu: Veski (sem er reyndar fullt af einhverju drasli..bíó/leikhús miðum og fleiru:P) Símann Dömubindi Lykla kanski gloss og mögulega tyggjó… Ekkert meira :P Reyndar er samt veskið mitt troðfullt af einhverju dóti, hehe. Drap næstum því vinkonur mínar úr hlátri þegar ég fór með þeim í bíó og tók síðan...

Re: Frönskuhálp sem fyrst! Merci beaucoup!

í Tungumál fyrir 17 árum, 1 mánuði
Heyrðu jú..það passar líka :) Var búin að gleyma pendant…

Re: Fenrir Greyback

í Harry Potter fyrir 17 árum, 1 mánuði
Þetta er nú bara leikarinn :) Hann á eftir að fara í mikið sminnk býst ég við og fara inn í hlutverkið :) Hann gæti vel orðið góður :)

Re: smá vesen

í Tíska & útlit fyrir 17 árum, 1 mánuði
Setja einhvern blettahreinsi á þetta, láta það bíða á soldið lengi og síðan setja í þvott…annars er ég samt enginn snillingur í þessu…

Re: Sá ljóti

í Leikhús fyrir 17 árum, 1 mánuði
Ég var ekkert sérstaklega spennt fyrir þessari sýningu, en núna hefur hún vakið áhuga minn. Sérstaklega þar sem hún er svona öðruvísi en margar aðrar sýningar… Mér fannst Jörundur Ragnarsson standa sig vel í Næturvaktinni, en þar sá maður samt ekki allmennilega hvort hann væri eitthvað góður leikari, og þá hvort hann væri það nokkuð á sviði. Ég fór á Lík í Óskilum sem hann lék í og hann stóð sig allveg frábærlega! Ég er viss um að hann gerir það líka hér, mér finnst hann allveg æðislegur...

Re: Aldur/Hæð/Þyngd/Markmið

í Heilsa fyrir 17 árum, 1 mánuði
Jú, það sem hún meinar er -Losna við fituna og fá vöðva í staðin :)

Re: Engisprettur

í Leikhús fyrir 17 árum, 1 mánuði
Jájá, gæti vel verið :P Finnst bara eins og það hafi ekki verið mikið af því á Íslandi -og svo spilar inn í að þetta leikrit er, eins og ég sagði, ekki samið inn í íslenskt samfélag. Já, ég er þannig líka. Finnst gaman að pæla í hlutunum og að það sé ekki allt augljóst :)

Re: Engisprettur

í Leikhús fyrir 17 árum, 1 mánuði
Hehe, já en er það ekki bara vegna þess að við íslendingar erum ekki eins dugleg að ,,fatta" svona leyndan boðskap. Þetta leikrit er náttúrulega ekki skrifað af íslendingi og er ekki beint til okkar samfélags, þó það á allveg erindi til okkar :) Það tók mig samt soldinn tíma líka til að melta þetta leikrit og komast að niðurstöðu hvernig mér fannst það! Var ekki bara: já, það er frábært! eða Það er ömulegt! Tók mig smá tíma að komast að niðurstöðu:P En þetta leikrit var náttúrulega mjög...

Re: Nervous Witch - ertu ekki að grínast!?

í Harry Potter fyrir 17 árum, 1 mánuði
Já, líka sumt fólk leit bara út fyrir að vera norn eða galdramaður. (t.d. kryppa á bakinu eða hvað sem fólkinu fannst nú benda til galdra) og ef fólkið var í góðri þjóðfélagsstöðu var mjög auðvelt fyrir þau að kæra einhvern fyrir galdur og vinna málið. Já..úff, pirrar mig svaka mikið. Væri allveg til í að skrifa ritgerð um þetta í skólanum. Geri það næst ef ég fæ frjálst val eða má skrifa eitthvað í sambandi við bækur/trú eða eitthvað :P

Re: Emma watson er HEIT!!!

í Harry Potter fyrir 17 árum, 1 mánuði
Nei hef ekki séð hana, en úff..vorkenni henni bara.

Re: Nervous Witch - ertu ekki að grínast!?

í Harry Potter fyrir 17 árum, 1 mánuði
Já, og trúir þetta fólk þá á galdra? Þetta er bara eins og í gamladaga þegar fólk sem grunað var um galdra var brennt á báli. (auðvitað ekki eins slæmt..en samt!) Já, þetta fólk er að tala um eitthvað sem það veit ekki um. Og afhverju alltaf Harry Potter? Það eru ekki einu bækurnar sem hafa skrifað um galdra.

Re: Nervous Witch - ertu ekki að grínast!?

í Harry Potter fyrir 17 árum, 1 mánuði
Hah, jú. Þeir vita bara ekkert um hvað þeir eru að tala. Þori að veðja að þau hafa ekki einu sinni lesið Harry Potter. Sjá ekki að Harry og vinir hans eru hið góða -Voldemort hið illa. Og maður heldur auðvitað með því góða. Alls ekki eins og Harry Potter og vinir hans dýrki satan og séu alltaf að fara með einhverja svartagaldra til að tilbyðja púkana og alla hinu illu anda. Eins og þeir haldi það…
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok