Sko þannig er mál með vexti að ég er 18 ára stelpa og kærastinn minn er 24 ára. Hann dauðlangar að eignast barn og er alltaf að þrasa í mér að hætta á pillunni.. ein ástæðan fyrir því að hann hætti með fyrrverandi kærustunni sinni er afþví hún var ekki tilbúin að eignast börn:/ og mér finnst ég engan veginn vera tilbúin í það, eða maður hugsar samt alveg stundum æjh hvað væri yndislegt að vera mamma..en sú hugsun er hætt eftir nokkrar sekúndur. Ég á bara eftir að gera alltof mikið í lífinu.. en er samt bara svolítið hrædd um að hann gefist upp á að bíða eftir að ég sé tilbúin til að stofna fjölskyldu með honum og finni sér gellu sem er tilbúin í það..hvað á ég að gera:/?