Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

Socky
Socky Notandi síðan fyrir 17 árum, 9 mánuðum 31 ára
250 stig
Kveðja, vodni galdrakalrinn Njartak.

Vantar ágætan upptökumann (2 álit)

í Kvikmyndagerð fyrir 12 árum, 8 mánuðum
Við erum byrjendur sem kunna ekki að stjórna myndavél. Við erum með handrit, props og tökustaði, en okkur vantar einhvern sem getur stjórnað myndavélinni og mögulega á myndavél, en við getum reddað miðlungsgóðri myndavél ef ekkert annað býðst. Ef þú hefur áhuga á kvikmyndatöku og ert til í að hellast í þetta verkefni með okkur endilega hafðu samband.

Krútt (3 álit)

í Myndlist fyrir 13 árum, 9 mánuðum
Ég hef ekki sent mynd hingað í háa herrans tíð, vá maður.

Ó, youtube. (12 álit)

í Tilveran fyrir 14 árum
Skamm, Youtube, skamm. Svona bara gerir maður ekki. Það er nóg að þið klessist í layoutinum og komið alltaf með eitthvað nýtt, óprófað og glitchy. Nýtt er svosem allt í lagi, en hvað með að prófa það áður en þið setjið það inn? Eða pælið að minnsta kosti smá í hönnuninni? Þið eigið nóg af peningi til að gera góða síðu. Layoutið einmitt núna lítur út eins og nemi í grafískri hönnun sé hálfnaður með verkefnið sitt og þurfti að senda það svona inn vegna tímaleysis. Það er alveg hægt að horfa...

Hákarlalýsi (9 álit)

í Húmor fyrir 14 árum, 10 mánuðum
Hanahakk says: I am eating shark oil >: D Hanahakk says: I feel dangerous Hanahakk says: (Though I do it every day) Moe says: Shark oil? Moe says: eeeew Hanahakk says: http://en.wikipedia.org/wiki/Shark_oil Hanahakk says: It's not bad! -Doc. says: O.O -Doc. says: SHARK OIL -Doc. says: WTF -Doc. says: HOW DO YOU GET OIL FROM A SHARK. -Doc. says: “EXCUSE ME SHARK SIR MAY I HAVE YOUR OIL”

En gamanað þessar gangstéttir séu svona nákvæmilega jeppabreiðar! (12 álit)

í Tilveran fyrir 14 árum, 11 mánuðum
“Dæmalaust þægilegt, maður getur lagt nákvæmilega þannig að vegfarendur komast ekki framhjá, og án þess að nokkur hluti af honum þurfi að vera á götu!” Ekki gaman. Annað hvort eru bílstjórarnir svona ótrúlega skemmtilegar manneskjur eða bílarnir eru farnir að rebela. Blögh. Í alvöru, hvað er yndislegra en dýr og flottur jeppi sem er greinilega allt of fínn til að snerta götuna? Nákvæmilega jafn breiður og gangstéttin?

Monotone (1 álit)

í Myndlist fyrir 15 árum
Einn litur er oft nóg :D

Brynjólfur -Fyrsta tilraun (6 álit)

í Myndlist fyrir 15 árum
Þetta er gaman að gera.

Æfingalínur (2 álit)

í Myndlist fyrir 15 árum, 1 mánuði
Nýlega ákvað ég að teikna mér mjög hlutlausar línur til að æfa mig í litum og bakgrunnum, því ég geri alls ekki nógu mikið af því. Ég elska svona myndir sem geta verið litaðar nánast hvernig sem er. (P.S. Blaðran heitir Brynjólfur.)

Hættulegar bækur (7 álit)

í Tilveran fyrir 15 árum, 2 mánuðum
Ævimynd Jónasar Hallgrímssonar reyndi að nefbrjóta mig er ég var að reyna að ná í bók uppá hillu. Þegar ég hafði jafnað mig á áfallinu reyndi ég aftur, og þá var sálmabókin frá ömmu minni næstum því búin að rota mig. (andvarp)Þessar bækur.

Andrés (9 álit)

í Tilveran fyrir 15 árum, 2 mánuðum
Hvaðan kemur nafnið Andrés?

Gay bear dating (7 álit)

í Húmor fyrir 15 árum, 2 mánuðum
Ég hef ekki alveg séð allt ennþá, en það nálgast.

Aðalsteinn (1 álit)

í Smásögur fyrir 15 árum, 2 mánuðum
Óformleg gjöf til NatOreN. Einu sinni var górilla sem hét Aðalsteinn. Aðalsteini þótti mjög gaman að japla á lestarteinum. Einnig þótti honum gaman að sauma efnislítil föt á barbídúkkur og blanda mysing og smjöri saman. (sem er reyndar mjög ljúffengt) Aðalsteinn bjó einn niðri í fjöru í litlum kofa úr glerflöskum og vann við að segja skemmtilegar sögur af honum Sveppa kallinum. Einn daginn þegar Aðalsteinn var að segja einkar skemmtilega sögu af því þegar Sveppi festi fótinn á sér í...

Epli (33 álit)

í Tilveran fyrir 15 árum, 3 mánuðum
Af hverju kemur svona skemmtilegt hljóð frá eplum þegar maður bankar í þau?

Fluffy Panda (4 álit)

í Sorp fyrir 15 árum, 4 mánuðum
http://www.youtube.com/watch?v=MQqSAYg0lRc Ég kann ekki að gera svona youtube dæmi D:

Ooh Dominos kann ekki að gera pítsur =_= (7 álit)

í Sorp fyrir 15 árum, 5 mánuðum
Djö.. ég er að tala um tvö álegg og tómatsósu, hvernig fóru þeir að því að klikka á því? Tvisvar?

Viddi fanart (13 álit)

í Sorp fyrir 15 árum, 5 mánuðum
Msn er æði!

Fyrsti hluti frumgerðar af ónefndri sögu (4 álit)

í Smásögur fyrir 15 árum, 5 mánuðum
Seg mér, kæri vinur, hefur þú einhverntímann þrá ð að vita að stað sem er ekki til? Heppinn ertu, hér er einmitt ein bíðandi eftir þér, bíðandi eftir vitneskju þinni. Svo hlustaðu vel og fyrir alla muni ekki gleyma henni, þegar minningin deyr, deyr það sem var horfið. Staðurinn heitir Akkerisskógur, sem er undarlegt nafn fyrir skóg. En sagan segir að fyrir mörghundruð árum hafi heljarstórt akkeri sigið niður úr skýjunum, lent í skóginum, beðið þar í eina eða tvær vikur (misjafnt hver er að...

Kamajii (7 álit)

í Anime og manga fyrir 15 árum, 6 mánuðum
Óendanlega svalur karakter (: Mjög óelskaður, því miður.

Hvað eru til mörg orð yfir snjó? (13 álit)

í Tilveran fyrir 15 árum, 6 mánuðum
Æji, ég man eftir bara fjórum.. snjór, drífa, fönn, mjöll.. Held samt að það séu mun fleiri, getur einhver sagt mér?

Anime/comic Cons (4 álit)

í Anime og manga fyrir 15 árum, 6 mánuðum
Vá hvað Ísland hefur eitthvað svo lítinn “geek-culture”. Er eitthvað annað en Nexus og almenningsbókasöfn með nokkrar möngur og amerískar myndasögur? Vinur minn er að fara á Anime Con í Danmörku, ég vissi ekki einusinni að Danmörk hefði þær. Oh, þessir Danir :P Meðan ég man, hvað myndi ykkur finnast að hafa einhverjar Conventions á Íslandi? Með eða á móti?

Amm, smá hjálp með bloggið (15 álit)

í Tilveran fyrir 15 árum, 8 mánuðum
Ég er enginn bloggari, og veit mjög lítið um þessar bloggsíður, og þess vegna þarf hjálp einhvers annars. Svo er að máli komið að norsku vinkonu mína langar mikið til að læra Íslensku, og ég var einmitt að hjálpa henni að signa sig upp fyrir bloggsíðu. Hún: What does “lykilorð” mean? Ég: Password ^^ Hún: Oh, thanks! But what does “Kennitala” mean? Ég: …Aw, shit. Svo semsagt, við eru mað reyna að finna blogg community sem biður ekki um kennitölu. Veit einhver um einhverjar? (Hún er geðveikt...

heilabörnin mín :3 (8 álit)

í Myndlist fyrir 15 árum, 8 mánuðum
Þetta eru Birta, Rán og Elfing, fyrstu hannanir persóna í myndasögu sem ég er búin að vera að dunda mér við. Ég biðst afsökunar á bakgrunninum, fannst að ég ætti að hafa einhvern bakgrunn svo þessi var sketsaður á stuttum tíma og ekki fínpússaður á neinn hátt.

Stærsta sverðið? (13 álit)

í Anime og manga fyrir 15 árum, 8 mánuðum
Ég er að gera “tilraun” til að gá hvaða anime/manga persóna á stærsta (og breiðasta) sverðið. Hvað er stærsta sverð sem þið hafið séð?

Helvítis Verslunarmannahelgi (21 álit)

í Tilveran fyrir 15 árum, 8 mánuðum
Í alla fokking nótt voru unglingar og eldri að labba ÖSKRANDI og fullir framhjá glugganum mínum. Og bætum því við að ég svaf í herbergi með þriggja mánaða barni >.< Og svo núna um miðjan dag eru þau að spila lög (sem eru svo slæm að þau gætu verið úr Eurovision) fyrir utan gluggan minn, svo fokking hátt þetta er að sprengja hljóðhimnurnar mínar þrátt fyrir þykka steinveggi og tvöföld gler. (Lagið sem hljómar núna er eins og: Iggilera úú iggilera í svona tvær mínútur) Nóg komið, ég drep...

Bratz (10 álit)

í Sorp fyrir 15 árum, 9 mánuðum
Og svo eftir það, þá geturðu fengið að ákveða hvort þetta sé Bratz eða MTV að kenna. …Veljiði MTV.
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok