Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

SenseiSvali
SenseiSvali Notandi síðan fyrir 17 árum, 6 mánuðum 98 stig
últra arty undirskrift

RS.Finnana, 31.janúar !!! (8 álit)

í Skátar fyrir 15 árum, 3 mánuðum
Loksins loksins, biðin er á enda! Últramega útilegan Rs.Finnana verður haldin af okkur fossbúapíum í skátaskálanum Flugu, þann 31.janúar næstkomandi. Þar sem ekki margir vita hvar fluga er staðsett, ætlum við að hittast á N1 í mosfellsbæ klukkan 20:00 og verða samferða svo enginn villist. Þá væri auðvitað últrakúl ef allir sem eiga, tækju með sér litlar talstöðvar svo hægt verði að spjalla á milli bíla. Fluga er staðsett skammt frá Borgarnesi og kostnaður yfir helgina er aðeins 1500 krónur....

skátasönguR (0 álit)

í Ljóð fyrir 15 árum, 5 mánuðum
Þetta ljóð var hrisst fram úr erminni eitt kveldið, það er hugsað með dægurlaginu “Það er draumur að vera með dáta” Að sitja við varðeld hjá skáta og syngja fram á nótt - svefnpokann þeirra svo máta þá hlýnar hjarta fljótt - Þeir alveg hreint ná manni' á vald er segja þeir: ,,komdu' inn í tjald"- Ég vil veltast um lyngið með skáta og kyssa hann hægt og hljótt.

Sims university - secret society (12 álit)

í The Sims fyrir 15 árum, 5 mánuðum
Heyrið hérna, ég er að vísu löngu hætt að leika mér í the SIMS, en ég átti the sims University, og mér tókst aldrey að komast inn í secret society… Hvernig fer maður að?

Dómsdagur þjóðar (4 álit)

í Smásögur fyrir 15 árum, 5 mánuðum
Mig langaði að setja þetta eitthvert en það er hvergi neinn þráður fyrir hugleiðingaskrif. Vona að ykkur líki. Hún er á barmi gjaldþrots. Eða er það bara enn ein geðveilan? Tána kreppir í skóinn. Eða er það kreppan sem gerir skóinn svo smáan? Þessi hála brún sem hún stendur á er þarna einhverstaðar, einhverstaðar í þokunni. Á meðan ég hlusta á fjölmiðla keppast við að koma orðum að þeirri örvæntingu sem þjóðin hefur fyllst vegna frjáls falls krónunnar, set ég upp skart og sparisvip og spóka...

Vélmenni-sjálfshjálp (5 álit)

í Myndlist fyrir 15 árum, 5 mánuðum
TEiknuð og og svo tekin inn í tölvuna í gegnum photobooth (mac) svo fiffuð í iPhoto vegna lélegra gæða í myndavélinni. -Kom smá svona.. vatnslita-fílingur með vinnslunni.

Draumadauðdagi (182 álit)

í Tilveran fyrir 15 árum, 6 mánuðum
Hvernig væri DRAUMA-DAUÐDAGINN þinn? Minn væri svona: Ég væri búin að éta mjöög mikið af kartöflusalati, nýbúin að spila öll lög sem mér dettur í hug á sembal uppi á Skessuhorni og búin að gefa út ljóðabók. Svo rétt fyrir dauðann væri ég búin að lesa Veröld Soffíu frá upphafi til enda svo ég deyi nú alveg nógu þunglynd til þess að geta yfirgefið þessa veröld. HVERNIG væri draumadauðdaginn þinn?

Mjólk (11 álit)

í Ljóð fyrir 15 árum, 6 mánuðum
MJÓLKURFERNULJÓÐ Þetta hér er mjólkurferna mjólkurfernan stendur hérna. Á einni hliðinni er orðaflóð sem vart getur talist sem fullklárað ljóð. Með morgunmatnum ég drekk mína mjólk Því það gerir hvert annað mikilvægt fólk. Sprautuð úr spenum er uppspretta sú Sem rétt eins og ljóðið, er hreint útúr kú. VALA HAUKSDÓTTIR 16.OKT.2008

Viltu kyssa mig? (5 álit)

í Ljóð fyrir 15 árum, 6 mánuðum
Ég er soldið sæt. Einn strákur reyndi að kyssa mig Ég lamdi hann með hanska því ég læt ekki bjóða mér, aðra kossa en franska. Ég er allveg ágæt Strákur vildi kyssa mig Ég kyssti hann á móti Því fæstir vilja líta á mig … nema á þorrablóti. Ég er bara ljót Ég vildi ég kynni að kyssa þig Eins og kyssa skyldi Ég þyrfti að fá að æfa mig Bara ef einhver vildi. Höf. VALA

Mjólkurfernuljóð (0 álit)

í Ljóð fyrir 15 árum, 6 mánuðum
Mjólkurfernuljóð. Mjólkurfernuljóð eru ofar mínum skilningi. Inni á milli margra lítra af mjólk leynast stöku góð ljóð. Þá er ómögulegt að vita hvort höfundurinn er tíu eða tuttugu og tveggja ára. En er þetta þema, “hvað er að vera ég?” ekki að verða nokkuð þreytt? Það er svo gaman að vakna á morgnana og geta lesið gott ljóð yfir morgunkorninu. En þá vil ég láta koma mér á óvart. Ég vil ekki geta séð fyrirsögnina og síðustu setninga og geta sagt fyrir um hvernig meginmálið er. Nú kunna sumir...

Ferðamaður (4 álit)

í Ljóð fyrir 15 árum, 6 mánuðum
Ferðamaður Ferðamaður frakkur fer Upp í hlíð að týna ber. Ferðamaður á göngu, fyrir langa löngu. Ferðamaður staldrar við undir tré, þar fær hann frið. Ferðamaður dofnar… …sofnar. Ferðamaður freðinn frosinn. ÚFF hvað hann er kaldur, mosinn. Ferðamaður hleypur heim, dettur svo um lausa reim. Eftir stendur lítið ker í því vaskur berjaher Höf. Vala haux ’04 / ‘05

dramatískt ástarljóð (7 álit)

í Ljóð fyrir 15 árum, 6 mánuðum
What is this I lost and never knew was there? Something is broken, some thing inside. Something hurts, that never hurt, something I don't know. She has gotten hurt and so has he, but he can always flirt, and easily feel free. Amore has clearly lost his bow. how much she wants, she wants to throw throw thoughts and feelings from above. Out the window of fifteenth floor, fifteenth floor or even more. She's feeling empty, bleeding. she thinks: No one can save me now my lips are pale, my skin is...

Skálar á hellisheiðinni (3 álit)

í Ferðalög fyrir 16 árum, 3 mánuðum
Samkvæmt öllum ferðahandbókum sem ég hef við hendina eiga að vera sex skálar auk eins neyðarskála. En ég finn ekkert um það hvað þessir skálar heita eða neitt. Hellisheiðin er svo rosalega falleg og mig langar að fara í skálaferð þangað eina helgi, en finn ekki neinar upplýsingar um það hvað þessir skálar heita. Eini skálinn sem ég veit um er skátaskálinn sem er í eigu skátafélagsins landnema, en það er bara fyrir dróttskáta, og ég ætlaði að fara með 13 ára skátaflokk á hellisheiðina. Getur...

because mouth doesn't say anything... (9 álit)

í Grafísk hönnun fyrir 16 árum, 5 mánuðum
Æfði mig aðeins meira í photoshop … hvað finst ykkur…? kommentið og leiðbeinið endilega! Ég ætla að vera góð í þessu einhverntíman!!

jea... óreynd. so... (6 álit)

í Grafísk hönnun fyrir 16 árum, 5 mánuðum
Ég s.s. kann egilega ekkert á photoshop en prófaði aðeins og …. hvað finnst ykkur fyrir manneskju ókunnuga photoshop? þetta er annars ég…

Lúkas - varúð! hræðileg frásögn! (29 álit)

í Hundar fyrir 16 árum, 10 mánuðum
Núna síðasta mánuðinn hefur verið leitað að litlum faxhundi sem að slapp út um gluggan heima hjá sér á Akureyri þegar hann var nýbúinn í aðgerð. Hann sást nokkuð oft, en enginn náði honum! HAnn náði sér í hestanammi í hesthúsahverfinu og það hefur líklega orðið honum til lífs, ásamt því að (eftir því sem ég hef heyrt) einhverjir voru svo hugulsamir að setja hundamat í hesthúsahverfið og hundamaturinn var alltaf búinn þegar gáð vara að. Hann hafði sést við og við í rúman mánuð,þegar kom að...

Eigin stíll (38 álit)

í Tíska & útlit fyrir 16 árum, 10 mánuðum
Er ekki tottalý málið að vera sinn eigin stíll?!… það er málið! ok…ég keypti mér smekkbuxur um daginn sem að ná næstum því niður á hné…. ekki allveg samt, (keypt í outfitters nation) fór svo í Cobra og keypti mér nokkur pör af sokkum sem ná næstum uppá hné… svo að þegar ég er í þessu saman þá sést bara í hnén og ekkert annað af löppunum. Sokkarnir eru með sona…. Afamunstri ef þið vitið hvað ég meina…. sona tíglar og aðrir tíglar yfir e-ð … kann ekki að útskýra, Virkar soldið...

Stuttmyndakeppni Gunna og Felix (2 álit)

í Kvikmyndagerð fyrir 17 árum, 6 mánuðum
Hverjir eru með? Ég ætla að prófa þetta … hef reyndar enga reynslu en það bíttar ekki fjörinu ;) Hvenar þarf etta að vera tilbúið?

Stuttmyndakeppni hætt við? :( (1 álit)

í Kvikmyndagerð fyrir 17 árum, 6 mánuðum
Hvað er þetta ! allt í lagi það var léleg þátttaka í síðustu stuttmyndakeppni. En mér þætti geggjað gaman að hafa einhverja stuttmyndakeppni núna í Október! Ég tók ekki þátt íþessari um auglýsingarnar bara af því að mér leist ekki nógu vel á þetta “theme”/þema (auglýsingar). I say no moore say no more ;)
  • Síður:
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok