Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

Scrooge
Scrooge Notandi frá fornöld 38 ára karlmaður
228 stig

Hæfi skátaforingja (18 álit)

í Skátar fyrir 15 árum, 4 mánuðum
Í framhaldi af umræðu hér á huga.is datt mér í hug að skella saman stuttri grein um hæfi foringja þar sem samfélag okkar hefur breyst á undanförnum árum og kröfur til fólks sem leiðir æskulýðsstarf hafa aukist. Ég vil byrja með að segja að í sambandi við aldur þá segir hann ekki alla sögu því miður. Ég hef séð 17 ára sveitarforingja sem standa sig glimrandi vel (Bleh) á meðan ég hef séð mun eldri sveitarforingja taka við gamalgróinni sveit og klúðra henni á nokkrum vikum. Aldur skiptir því...

Skáta-Ædol 2004 (6 álit)

í Skátar fyrir 15 árum, 4 mánuðum
Á myndinni má sjá þátttakendur í skáta-ædol 2004 ásamt þeim frábæru kynnum, Danna og Hjalta, sem hjálpuðu okkur við þetta verkefni. Myndin er tekin í dagsferð þar sem m.a. var stoppað í bláa lóninu.

Skátaskálar og mikilvægi þeirra (42 álit)

í Skátar fyrir 15 árum, 4 mánuðum
Skátaskálar geta verið grundvöllur fyrir því að virkir skátahópar myndist innan félaga. Reynslan mín er sú að í kringum 14-16 ára aldur þá var ég meira og minna í útilegum með virkustu skátum höfuðborgarsvæðisins í hinum ýmsu skálum. Ég er ekki í vafa um að þessi tími hafi verið sá sem réði úrslitum að ég hélt áfram í skátastarfi. Ég hef einnig heyrt svipaða sögu frá öðrum skátahópum í kringum minn aldur. Skátaskálar og aðgengi að þeim getur því spilað lykilhlutverk í skátastarfi. Sem betur...

Excellentia ferðaráðgjöf (0 álit)

í Ferðalög fyrir 16 árum, 3 mánuðum
Hefur einhver ferðast með Ingu hjá Excellentia hérna? Ef svo, hvernig gekk það?

Nýr Stjórnandi (3 álit)

í Skátar fyrir 17 árum, 11 mánuðum
Eins og fram kom í korki hér fyrir um það bil mánuði sagðist ég ætla að uppfæra stjórnendalistann í sambandi við vefstjóra. Stjórnendur hafa nú verið uppfærðir og fékk ég Baldur Skáta, Landnemum, til að aðstoða mig við þetta gríðarmikla starf að vera hér stjórnandi. Baldur hefur verið virkur á vefnum svo lengi sem ég man eftir mér hér og tel ég að ekki sé hægt að finna hæfari mann í verkið. Eins og staðan er þá held ég að við ættum að ráða við þetta tveir, veit ekki hvenær og hvort sikker og...

Skýjaborgir brunnar til grunna (81 álit)

í Skátar fyrir 17 árum, 11 mánuðum
Í nótt kom upp eldur í skáta Skátafélagsins Hraunbúa í Hafnarfirði. Um er að ræða Skýjaborgir sem voru staðsettar undir Bæjarfellinu gegnt Arnarfelli. Skálinn er brunnin til grunna. Skýli sem var við hlið skálans var dregið af grunni og dregið að bílastæðinu mið tilheyrandi skemmdum. Ljóst er að bruninn og skemmdir á svæðinu er mikið áfall fyrir Hraunbúa. Samkvæmt lögreglu er líklegast að um íkveikju hafi verið að ræða. Það er ótrúlegt hvað fólk ber ekki virðinu fyrir neinu!

Áttu flíspeysu merkta skátafélaginu þínu eða sveit? (0 álit)

í Skátar fyrir 17 árum, 11 mánuðum

Sumardagurinn fyrsti í Hafnarfirði (13 álit)

í Skátar fyrir 17 árum, 12 mánuðum
Sæl SkátaHugarar Sumardagurinn fyrsti í Hafnarfirði hafði verið eins frá því ég man eftir mér. Það var messa í Hafnarfjarðarkirkju, skrúðganga að skátaheimilnu þar hægt var að taka þátt í víðivangshlaupi á vegum íþróttafélaganna eða fá sér kaffi og með því í skátaheimilinu. Það voru tvær ofursystur hér í Hraunbúum sem sáu hvað þetta var leiðinlegt til lengdar. Þær létu því hendur standa fram úr ermum og skipulögðu virkilega góða skáta-hátíðarhöld fyrir sumardaginn fyrsta sem var nú um...

Úr sveitarútilegu hjá Hraunbúum (1 álit)

í Skátar fyrir 18 árum
Riddarar skelltu sér í sveitarútilegu í febrúar.

Hefur þú farið til útlanda með skátunum? (0 álit)

í Skátar fyrir 18 árum, 1 mánuði

Á ekki að smella sér á VORMÓT í KRÝSUVÍKINNI?? (0 álit)

í Skátar fyrir 18 árum, 1 mánuði

Skandall innan skátanna (4 álit)

í Skátar fyrir 18 árum, 2 mánuðum
Já nú þegar ég hef náð athygli ykkar ætla ég að spyrja ykkur. Ætlar virkilega ekki fleiri en 7 hugarar að taka þátt í skátadeginum á einhvern hátt? (sjá atburðir)

Ert þú pappakassi? (14 álit)

í Skátar fyrir 18 árum, 2 mánuðum
Jæja, eruði menn eða mús. Eftir að verðið var lækkað hefur enginn afsökun til að fara ekki á alheimsmótið 2007!

Ætlar þú að mæta á kynningarfund Jamboree (0 álit)

í Skátar fyrir 18 árum, 6 mánuðum

Myndir frá dróttskátanámskeiði (5 álit)

í Skátar fyrir 18 árum, 6 mánuðum
Jæja, einhverjir voru að biðja um myndir frá Ds. námskeiðinu á Úlfljótsvatni í september. Harpa snilli plöggaði nokkrum myndum sem gefur að líta hér: http://www.hi.is/~hov/dsnamskeid/

Ætlar þú að taka þátt í JOTI? (0 álit)

í Skátar fyrir 18 árum, 6 mánuðum

JOTI í Hraunbyrgi (9 álit)

í Skátar fyrir 18 árum, 6 mánuðum
Hraunbúar bjóða skátum að kíkja í Hraunbyrgi milli 12 og 18, laugardaginn 15. október. Við verðum með nokkrar tölvur tengdar JOTI. Ýtið einnig á ykkar skátafélag að vera með opið fyrir ykkar skáta á laugardeginum!

Heimsmót skáta á netinu! - JOTI (10 álit)

í Skátar fyrir 18 árum, 6 mánuðum
Dagana 15. – 16. október næstkomandi verður JOTI og JOTA skátamótin haldin á internetinu og ,,í loftinu”. JOTI skátamótið er einstakt tækifæri fyrir skáta til að taka þátt í alþjóðastarfi skátahreyfingarinnar en þúsundir skáta munu sækja mótið úr öllum heimshornum. Ekkert þátttökugjald er á mótið. Það er von Alþjóðaráðs að sem flestir skátar í þínu skátafélagi taki þátt í mótinu en þar geta þeir eignast fjarlæga skátavini, kynnst skátastarfi í öðrum löndum og menningu annarra landa. Þetta er...

Er sumarstarf í þínu félagi? (0 álit)

í Skátar fyrir 18 árum, 8 mánuðum

Landsmót - Eitthvað fyrir alla! (17 álit)

í Skátar fyrir 19 árum, 2 mánuðum
Eins og allir vita verður Landsmót skáta haldið í sumar á Úlfljótsvatni. Mótið verður haldið daga 19. - 26. júlí en þegar mest verður má áætla að um 5000 manns verði á svæðinu. Að þessu sinni verður þema mótsins ,,Orka Jarðar" og mun rammi mótsins verða miðaður út frá því. Einstakt tækifæri! Landsmót er aðeins haldið á þriggja ára fresti og því er um að gera fyrir alla skáta og dróttskáta að skella sér á landsmót og eiga góðar stundir með góðum vinum og félögum í hreinu ævintýri við...

Skátar (15 álit)

í Skátar fyrir 19 árum, 8 mánuðum
Ædol Hraunbúa

Ædol (0 álit)

í Skátar fyrir 19 árum, 8 mánuðum
Ædol

Baden Powell (0 álit)

í Skátar fyrir 19 árum, 8 mánuðum

Skátar (3 álit)

í Skátar fyrir 19 árum, 8 mánuðum
Staðsettu tjaldið þitt vel!
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok