Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

Vantar PS3 Dual Shock 3 fjarstýringu! (0 álit)

í Leikjatölvur fyrir 14 árum, 8 mánuðum
E-r til í að selja?

Vantar Baldur's Gate - Dark Alliance I/II á PS2 (0 álit)

í Leikjatölvur fyrir 15 árum, 4 mánuðum
Sælir, Ég er til í að kaupa Dark Alliance I og/eða II á PlayStation 2! Finn hann hvergi í búðum, er að tryllast! Einhver til í að selja?

Vantar Baldur's Gate - Dark Alliance I/II á PS2 (1 álit)

í Leikjatölvur fyrir 15 árum, 4 mánuðum
Sælir, Mig langar að kaupa Dark Alliance I og/eða II á PlayStation 2! Finn hann hvergi, er að tryllast! Einhver til í að selja?

Vantar Baldur's Gate - Dark Alliance II á PS2 (3 álit)

í Tölvuhlutverkaleikir fyrir 15 árum, 4 mánuðum
Ég er til í að kaupa Baldur's Gate Dark Alliance I eða II - eða báða. Áhugasamir mega endilega hafa samband á fths@hi.is eða 866-7473.

Miðaskipti? (Belle & Sebastian) (0 álit)

í Rokk fyrir 17 árum, 10 mánuðum
Ég á miða á Belle& Sebastian á Nasa, 27. júlí, en langar frekar á Borgarfjarðartónleikana. Er einhver sem langar að skipta!? Sendið mér póst á fths@hi.is eða hringið í 866-7473!

Miðaskipti - Belle & Sebastian? (0 álit)

í Popptónlist fyrir 17 árum, 10 mánuðum
Halló, Ég á miða á Belle & Sebastian á Nasa 27. júlí en langar frekar að fara á tónleikana í Borgarfirði eystra 29. júlí. Er einhver sem vill skipta á miðum þar sem það er uppselt á báða tónleikana? Vinsamlegast hafið samband með e-mail (fridrik@kblif.is) eða í síma 866-7473.

Skjákort og Inspiron 8500 (2 álit)

í Vélbúnaður fyrir 19 árum, 3 mánuðum
Kæra Hugafólk, mig vantar ráðgjöf í sambandi við fartölvu sem ég á. Um er að ræða Dell Inspiron 8500 vél með 15,4“ WUXGA skjá en hún er búin ”Mobility Radeon 9000“ skjákorti. Um jólin fékk ég leik, ”Lord Of The Rings: The Battle for Middle Earth“, en hann skynjar kortið sem 16mb þó svo að Display Properties í vélinni segi það vera 32mb (sem er minimum requirement). Cut the crap. Ég hrindi í EJS og spurði hvort þeir væru með uppfærslur á skjákortum fyrir vélar eins og þessar, þar sem ég gæti...

Tolkien (0 álit)

í Tolkien fyrir 19 árum, 8 mánuðum
Frodo í vandræðum, Shelob í nánd… Ljós Earendil lýsir í myrkrinu.

Metall (0 álit)

í Metall fyrir 19 árum, 8 mánuðum
Konungar þungarokksins beygja sig ekki undir neinn…. The MetallicA way of life: Be yourself!

Hljóðfæri (0 álit)

í Hljóðfæri fyrir 19 árum, 8 mánuðum
Það er magnað að geta dregið þennan upp og slammað þegar mann langar til….

O.N.E. - Pempin' (3 álit)

í Hip hop fyrir 20 árum, 2 mánuðum
Var að velta því fyrir mér hvort einhver hér vissi hvernig væri hægt að redda þessu lagi á mp3-formi? Er það til e-s staðar á netinu eða? Endilega senda mér link eða svara þessum pósti, fridrikthor@hotmail.com http://frikki.bloggari.com

Anger Management (9 álit)

í Kvikmyndir fyrir 20 árum, 11 mánuðum
Síðastliðin misseri hefur, að því er virðist, glundroði ríkt í málum Adams nokkurs Sandler. Hann hefur gefið frá sér hvert lambasparðið á fætur öðru og ber þar helst að nefna “Big Daddy”, “Mr. Deeds” og annað slíkt sorp (reyndar hef ég ekki séð Punch-Drunk Love en hef heyrt góða hluti… Ég læt því vera að gagnrýna hana). Vissulega var mér því þungt um geð er ég kíkti á nýjustu afurð kappans, Anger Management. Ég gladdist þó þegar ég sá að myndin var frá “Happy Madison” og skyndilega hugsaði...

The Matrix Reloaded - Greining að hluta... (59 álit)

í Kvikmyndir fyrir 20 árum, 11 mánuðum
Ég ákvað að skella hér inn smá færslu af blogg-síðunni minni, fts.blogspot.com Þið afsakið það þótt ég tali eitthvað um “færslur” í þessu, ég nennti lítið að edita áður en ég setti þetta inn hér á Huga.is. Here goes: Á laugardaginn var tók ég mér frí frá bókunum og skellti mér í kvikmyndahús að sjá nýju Matrix-myndina, The Matrix Reloaded. Myndin er að nokkru flókin, a.m.k. flóknari en sú fyrri og því var ég ekki alveg sáttur við sjálfan mig fyrr en ég fór aftur að sjá hana í gærkvöldi. Nú...

Hvað finnst þér um breytingarnar í TTT? (0 álit)

í Tolkien fyrir 21 árum, 4 mánuðum

Nýr Faramir... (20 álit)

í Tolkien fyrir 21 árum, 4 mánuðum
Í gærkveldi barði ég augum The Two Towers. Eins og líklegt þótti var það yndislegt og myndin frábær í alla staði. Líkt og í Fellowship of the Ring brá P.J. sér þó nokkuð út af upprunalega söguþræðinum. Þar ber einna helst að nefna fall (og yfirleitt þátttöku) Haldír í bardaganum við Helm's Deep. Meira þótti mér sjálfum þó um breyttan Faramir. Í myndinni kemur fram Faramir sem er nokkuð ólíkur þeim er fram kemur í bókinni. Hér er hann látinn stjórnast að nokkru af föður sínum og ósk sinni um...

Málvernd til heiðurs Tolkien? (26 álit)

í Tolkien fyrir 21 árum, 4 mánuðum
Eins og margir vita en fæstir sjá er hrikalegt málfar haft við hér á Huga.is. Í rauninni er Hugi helvíti málunnandans, þar sem stafsetningarvillur og beinlínis ljótt mál virðast engum enda ætla að ná. Eins og við vitum vonandi öll var Tolkien mikill tungumálamaður. Hann unni ekki einungis eigin tungu heldur varði hann miklum tíma í að læra annarra þjóða mál til þess að geta lesið bókmenntir þeirra óþýddar og ómengaðar. Rit hans eru skrifuð á skemmtilega enskan hátt þar sem fagurmælgi dregur...

Um brotna hljóma... (7 álit)

í Jazz og blús fyrir 21 árum, 4 mánuðum
Ég lendi stundum í vandræðum þegar ég er að spila brotna hljóma, er ekki alveg viss hvaða nótur koma á eftir hvaða nótum… T.d. þegar ég tek Cm6 í Blue Bossa (Solar Flair) þá er ég smá að klikka og veit ekki alveg hvað á að gera… Hjálp, ég er byrjandi í djassinum :)

Tolkien's Ring - Continued.... (12 álit)

í Tolkien fyrir 21 árum, 5 mánuðum
Jæja, þá er mál til komið að reyna að troða einhverju í viðbót hér inn á áhugamálið. Ég þakka góðar undirtektir vegna fyrstu greinarinnar og vona að þessi gefi af sér eins skemmtilegar umræður og hún. Áður en ég byrja vil ég þó benda mönnum á að nauðsynlegt er fyrir alla Tolkien-aðdáendur að glugga aðeins í fornbókmenntir okkar Íslendinga, þó ekki væri nema það. Eins og áður sagði ber þar helst að nefna Snorra-Eddu og frásögn hennar af sköpun heimsins og máttarvalda er þar eru að verki....

Tolkien's Ring (28 álit)

í Tolkien fyrir 21 árum, 5 mánuðum
Fyrir nokkru síðan áskotnaðist mér bók nokkur eftir David Day, Tolkien's Ring. Bók þessi er ákaflega fróðleg fyrir þá sem hafa það sem mætti kalla “djúpstæðan áhuga” á Tolkien og hans fræðum, enda fjallar hún um mýtólógíuna í hugarlendum hans útfrá hliðstæðum í mismunandi menngingarheimum okkar Jarðar. Hún greinir m.a. frá skírskotunum í bókmenntir og frásagnir fyrri alda, vísunum í Artúrsku goðsagnirnar, sögurnar af Karlamagnúsi og riddurum hans, ævintýri Austurlanda fjær, germanskar,...

Verð að komast í hljómsveit! (0 álit)

í Hljóðfæri fyrir 21 árum, 7 mánuðum
Ólærður gítarleikari/söngvari vill endilega komast í hljómsveit! Vil helsts spila melódískt rokk, hlusta mest núna á Alice in Chains, MetallicA, Soundgarden, Coldplay en er til í að prófa mig áfram í þessum málefnum. Vil helst búa til frumsamið efni, minna cover…. Áhugasamir hafi samband í síma 8667473 (Frikki) eða krikakusk@hotmail.com.

Treebeard í myndunum? (14 álit)

í Tolkien fyrir 21 árum, 7 mánuðum
Heil og sæl, bræður og systur! Nú er ég búinn að vera að renna mér í gegnum trilógíuna góðu sem þetta áhugamál er tileinkað, og það ekki í fyrsta skipti. Eftir því sem ég les meira tek ég eftir því að mér líkar alltaf betur og betur við Enturna (Ents) eins og þeir kallast á íslensku. Það er alveg magnað hvað Tolkien er mikill snillingur í að lýsa einhverju sem á í rauninni ekki að vera hægt að lýsa. Maður sér til dæmis strax fyrir sér hvernig viskubrunnur Treebeard (Trjáskeggs) blasir við...

Led Zeppelin og Tolkien... (15 álit)

í Tolkien fyrir 22 árum
Ég vil vekja athygli á því að Led Zeppelin bræður voru miklir Tolkien-aðdáendur, enda djúpt sokknir í hippakonseptið. Hipparnir dáðu Tolkien, enda elskuðu þeir að ferðast um hugarlendur hans á sýrutrippunum sínum. Ég bendi mönnum með þessari grein á tvö lög, “Ramble On” og “Battle of Evermore”, en þar er mikið um Tolkien-tilvitnanir, svo ekki sé minnst á “Misty Mountain Hop”! “The ringwraiths ride in black (RIDE ON!)” -Battle of Evermore “In the darkest steps of Mordor, I met a girl so fair....

Færeysku snillingarnir í "Týr" (16 álit)

í Rokk fyrir 22 árum
Ég var að komast yfir einn mesta snilldardisk sem ég hef hlustað á í langan tíma. Þetta er auðvitað hin magnaða hljómplata “How far to Asgaard” með snillingunum í Týr. Ég veit ekki hvers vegna, en skyndilega urðu þessir gaurar hit number á Rás 2, mamma mín heyrði í þeim og sagði mér að ég yrði að eignast þetta, svo fór hún og keypti plötuna handa mér. It's nice having a mom around, ain't it? Gítarleikari sveitarinnar fer hamförum á plötunni, hann hatar ekki að sleikja skalana og er í góðu...

Hvort á maður að fá hærra XP fyrir? (0 álit)

í Spunaspil fyrir 22 árum, 1 mánuði
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok