Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

Re: WTF ^^

í Ljósmyndun fyrir 19 árum
Jább. Síðan er hérna frænka hennar og umþb. jafnaldra minnir mig. http://www.myalbum.is/d/95405-1/HeklaMj__ll.jpg Hún er með full mótaða augnhimnu sýnist mér (augasteinarnir eru reyndar talsvert stórir akkúrat þarna, þannig að það sést ekki alveg).

Re: Ný EOS 1D Mark (III)

í Ljósmyndun fyrir 19 árum
Ég myndi hafa mök við húsdýr til að fá þessa myndavél.

Re: Wanna play ?

í Ljósmyndun fyrir 19 árum
Skemmtileg mynd :p Það eina sem mér dettur í hug þegar ég sé titilinn er eitthvað perralegt, þannig að hundurinn gerir þetta svolítið awkward …

Re: WWE , Pro wrestling. á heima hérna

í Bardagaíþróttir fyrir 19 árum
Verða menn þá ekki bara að slaka aðeins á í þessar hraununarhyggju? Ég veit að ég kem ekki til með að missa svefn yfir því þó að það væri talað um pro-wrestling hérna, og ég sé ekki af hverju nokkur maður ætti að sjá eitthvað að því.

Re: Uppsett hár

í Tíska & útlit fyrir 19 árum
Nú? Það er ekki eins og ég sé með það lafandi framfyrir. Ég er bara með sítt hár og ég er oftast með það í tagli. Síddin sést ekki þegar horft er framan á mig.

Re: Uppsett hár

í Tíska & útlit fyrir 19 árum
Hvað kallast þetta ‘venjulega’ tagl annars? En já, ég er með hár niður fyrir brjóst og ég set það í tagl. Slást eða?

Re: MK > FG

í Skóli fyrir 19 árum
Merkilegt.

Re: Uppsett hár

í Tíska & útlit fyrir 19 árum
Ég er með hár niður fyrir brjóts og ég er bara alltaf með það í ‘hráu’ tagli og mér finnst það bara awesome.

Re: Vælulög

í Rómantík fyrir 19 árum
Rofl. Satt. :D Væludiskur. Samt alveg merkilega skemmtilegur áheyrnar finnst mér, eftir að maður venst .. öhm .. stílnum.

Re: Jarðtenging

í Hljóðfæri fyrir 19 árum
Er þetta ekki bara ansi venjulegur vír? Ekki verra að hafa hann gul+grænan ef þú ætlar að nota hann í jarðtengingu (svona upp á þægindin fyrir þann næsta sem fer að grúska í þessu).

Re: Kattar verndargripir.

í Dulspeki fyrir 19 árum
Mig langar í hring sem veitir mér +2 DEX.

Re: Og svo viljum við herða refsingar...

í Deiglan fyrir 19 árum
Hvað gerir maður ekki fyrir peninga? :P

Re: Trúarbrögð

í Heimspeki fyrir 19 árum
Já, mér finnst nefnilega alls ekkert allir prestar vera neitt svakalega þroskaðir í trúnni. T.d. finnst mér það sem ég hef heyrt Karl Sigurbjörn (hann er nú reyndar biskup…) segja benda til þess að hann sé hreint ekki mjög þroskaður í trúnni skv. því sem ég meina. Fáfræðin og þröngsýnin í sumum ræðunum hans er alveg gífurleg.

Re: MK > FG

í Skóli fyrir 19 árum
Nei, ekki þessari spurningu. Man nokkuð vel eftir því, tók vel eftir þessu.

Re: Bestu Clön Íslands?

í Half-Life fyrir 19 árum
Ég er gamall CSari .. var að spila svona í kringum version 1.3 - 1.4 Ég er að tala við hvern þann sem vill hlusta. Ég er að tala um hvað heimurinn er fljótur að breytast og hvað stórar stjörnur einn daginn geta verið sokknar í sæ (eða sokknar í Háskóla) daginn eftir. :)

Re: Bestu Clön Íslands?

í Half-Life fyrir 19 árum
Fyndið. Ég var einmitt að spjalla við litla frænda minn sem er að spila CS, ég fór eitthvað að spyrja hann útí hverjir væru bestir í dag og hann kannaðist ekki einusinni við nöfn eins og zlave og MurK.

Re: Að taka upp gítar

í Hljóðvinnsla fyrir 19 árum
Jájá. Experimentaðu síðan bara með fjarlægðir og tónstyrkinn í magnaranum þangað til þú ert kominn með soundið sem þú vilt :D

Re: Trúarbrögð

í Heimspeki fyrir 19 árum
Hvaðan hefurðu þetta með kostnaðinn við rekstur gvuðfræðideildarinnar?

Re: Trúarbrögð

í Heimspeki fyrir 19 árum
Þá hefurðu greinilega ekki talað við marga svoleiðis, eða allavega ekki þá sem eru “þroskaðir” í trúnni. Það er samt alveg leiðinlega lítið hlutfall af trúuðum sem meika eitthvað sens, ef maður getur sagt það svoleiðis. :P En vitanlega skemmtilegast að tala við þá.

Re: erfitt að hætta:')

í Heilsa fyrir 19 árum
Besta leiðin til að hætta er að einfaldlega sleppa því að gera þetta. Hversu erfitt er það? Þannig hætti ég amk. að reykja.

Re: Fyir hvern er leikurinn gerður?

í Tilveran fyrir 19 árum
Algjörlega sammála þér. Ég var líka í keilu þarna í gær og fannst þetta alveg glatað. Ég vil hafa keiluna eins og hún var alltaf niðrí Mjódd. Heyrði að það væri búið að loka því .. veit einhver eitthvað meira um það? :O

Re: Snjókristallar

í Ljósmyndun fyrir 19 árum
Gott myndefni. Myndin hefði samt mátt heppnast betur. :P

Re: Íranir með geimferðaáætlun

í Deiglan fyrir 19 árum
Stríðsrekstur skapar líka alveg ótrúlega mikla veltu.

Re: vandamál+ástarsorg

í Rómantík fyrir 19 árum
Þá skaltu mæla með því við hann að hann átti sig á því hvernig honum líður áður en hann fer að henda frá sér einhverju sem er jafn verðmætt og gott samband, útafþví það sé ekki eitthvað sem hann geti fengið aftur með því að ýta á takka.

Re: vandamál+ástarsorg

í Rómantík fyrir 19 árum
Þá er spurning hvort hann átti sig á því sem ég nefndi í fyrra svarinu mínu.
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok